Frjáls verslun - 01.08.1977, Page 29
Mynd 3: Meðalvinnuvikulengd stjórnenda.
5
Tímafjöldi.
eiga þeir að vita fullkomlega,
hvaða ákvarðanir þeir mega
taka án samráðs við þá. Þeir
eiga að vita, hvaða upplýsingar
yfirmenn þeirra vanhagar um.
Þeim ætti einnig að vera kunn-
ugt á hvaða tíma yfirmenn
þeirra geta helzt gefið sér tíma
til viðræðna og í hvaða málum
þeir eiga að ráðfæra sig við þá.
Sé þessum skilyrðum fullnægt,
ættu undirmenn ekki að taka
meiri tíma frá stjórnendum sín-
um, en nauðsyn krefur.
LOKAORÐ
Ef marka má af niðurstöðum
athugunarinnar hafa íslenzkir
stjórnendur náð mjög mislangt
við að bæta starfshætti sína.
Helzt virðast stjórnendur þurfa
að bæta skipulagningu vinnu-
tímans og um leið halda dagbók
um athafnir sínar í nokkurn
tíma, sem þá yrði grundvöllur
að skipulagningunni. Einnig
mættu þeir taka upp deleger-
ingu, eins og við verður komið.
Ýmislegt virðist vera sameigin-
legt með íslenzkum og erlend-
um stjórnendum, eins og við
mátti búast, þar sem eingöngu
voru valin stór fyrirtæki.
Þó athugunin geri ekki ann-
að en snerta yfirborð þess efn-
is, er fjallað var um, er það
von mín að niðurstöður hennar
hvetji til fleiri og ýtarlegri
rannsókna á þessu sviði. þar
sem um óplægðan akur er að
ræða.
Mynd 4: Tími, sem stjórnendur eyða innan eigin fyrirtfeekis.
3 3 3
Prósentuhlutfall af heildarvinnutíma.
AthiUgun á starfsháttum
stjórnenda. Spumingar.
1. Hve marga tíma vinn-
ið þér að meðaltali á
viku?
2. Hafið bér tíma til að
framkvæma allt, sem
yður finnst nauðsyn-
legt?
3. Skipuleggið þér tíma
yðar fyrirfram?
4. Hve miklum tíma eyð-
ið þér innan fyrirtæk-
isins?
5. Hve miklum tíma eyðið
þér utan fyrirtækisins?
6. Hvað eyðið þér mikl-
um tíma einn (%)?
7. Hvað fáið bér lengi að
vera ótruflaður í einu,
í lengsta Iagi, ef þér
eruð einn?
8. Hverjar eru verstu
truflanirnar?
9. Gerið þér eitthvað, sem
einhverjir af ,undir-
mönnum yðar gæti
gert?
10. Gefið þér undirmönn-
um yðar tiltölulega
frjálsar hendur, eða
þurfa þeir að ráðfæra
sig mikið við yður?
11. Skiptið tíma yðar hlut-
fallslega á eftírtaldar
athafnir: langtímaáætl-
anir, skammtímaáætl-
anir, ákvarðanatökur,
eftirlit, starfsmanna-
mál, ráðleggingar og
leiðbeiningar, upplýs-
ingaskipti (munnleg).
12. Skiptið athöfnum yðar
hlutfallslega milli eft-
irfarandi tveggja at-
riða:
a) Athafnir sem varða
daglegan rekstur.
b) Aiíhafnir sem varða
framtíðina.
FV 8 1977
29