Frjáls verslun - 01.08.1977, Side 61
búsáhöld. Baðstofan á Rifi er
verslun sem selur ýmsar gjafa-
vörur, leikföng og málverk.
Eigandi hennar er Jóhannes
Jóhannesson.
— Hvað snertir framkvæmd-
ir á vegum hreppsins, þá er
íþróttahússbygging , einna
stærsta átakið sem unpið hef-
ur verið að að undanförnu. Hef-
ur það fyrirtæki legið á hreppn-
um í ein 10 ár. í húsinu er sund-
laug, sem íþróttagólf verður
lagt yfir á vetrum. Sundlaugin
var tekin í notkun sl. vetur en
gólfið verður lagt á núna á
næstunni. Ætti það að verða til-
búið til íþróttakennslu fljótlega
eftir að skólar byrja. Hér er
svo búið að steypa plötu undir
nýjan grunnskóla. Húsið verð-
ur 1160 fermetrar á einni hæð
og kemur byggingin til með að
kosta um 1505 milljónir. Haldið
verður áfram með bygginguna
á næsta ári, en hún verður trú-
lega okkar stærsta átak á kom-
andi árum.
GATNAGERÐIN
— Nokkuð er alltaf um
gatnagerðarframkvæmdir hjá
okkur. Núna er verið að undir-
búa eina götu á Rifi undir mal-
bik og fyrirhugað að leggja á
eina götu á Hellissandi.
— Vatnsveituframkvæmdir
hafa staðið yfir nokkur síðustu
ár og er vatnsveitan að komast
í nokkuð gott horf. Fram-
kvæmdum er þó ekki alveg
lokið.
— Nú í haust á að hefja bygg-
ingu 3 leiguíbúða á vegum
hreppsins og eru það þær fyrstu
af 8 íbúðum sem við höfum
fengið heimild til að byggja.
— Hafnarframkvæmdir á Rifi
eru aðallega á vegum ríkisins,
sagði Samúel. en þær hafa orð-
ið sveitarfélaginu til góðs og
gjörbreytt allri aðstöðu til út-
gerðar hér.
Félagsheimilið Röst, Hellissandi:
Eitt fárra samkomu-
húsa á Snæfellsnesi
— mikið um dansleiki og veizluhöld
auk kvikmyndasýninga og funda
Það hús á Hellissandi sem að
jafnaði er mest um að vera í
heitir Röst og er félagsheimili
staðarins. Frjáls verslun hitti
framkvæmdastjóra hússins,
Hafstcin Jónsson að máli og
bað hann að fræða lesendur
blaðsins um húsið og starfsem-
ina þar.
— Röst er búin að vera í
notkun áð hluta síðan 1963,
segði Hafsteinn — en húsið var
fullbyggt 1966 í því formi sem
það er nú. Neshreppur á húsið
að tveimur þriðju hlutum, en
Kvenfélagið ,Ungmennafélagið,
Leikfélagið og Verkalýðsfélag-
ið eiga þriðjung. Hreppurinn
sér að öllu leyti um reksturinn
og er ég einn í föstu starfi við
húsin en alltaf er eitthvað af
lausráðnu fólki við ýmis störf.
Hvað starfsemina snertir, þá
eru hér 3—4 kvikmyndasýning-
ar á viku. Myndir eru sýndar
svona tvisvar til þrisvar eftir
því hvernig aðsókn er. Þá eru
hér dansleikir, árshátíðir, veisl-
ur og funda'höld. í kvöld er hér
t.d. mikil hátíð hjá félagasam-
tökum af Vesturlandi með öll-
um tegundum veitinga. Á
sumrin eru hér dansleikir öðru
hverju. Sýslumaður Snæfells-
og Hnappadalssýslu heldur allt-
af fund á vorin með forstöðu-
mönnum samkomuhúsa í sýsl-
unni og er þá ákveðið um
fjölda dansleikja og skiptingu
þeirra milli húsanna. Eru yfir-
leitt haldnir tveir dansleikir í
einu á nesinu. Á 17. júní og
sjómannadaginn er þó frjálst
að halda dansleiki. Ákvæði
þessi gilda bara fyrir laugar-
daga, svo þess vegna gætum
við verið með dansleiki hvert
föstudagskvöld eða sunnudags-
kvöld. Við erum að vonast til
að fá breytinguar á þessu fyrir-
komulagi. Sum húsin nota sér
aldrei réttindi sín til dans-
leikjáhalds og getum við sem
alltaf notum réttinn hugsað
okkur að nota þessa daga.
DANSLEIKIR VEL SÓTTIR
— Röst leigir venjulega út
réttinn til dansleikjahalds,
sagði Hafsteinn, — og eru
Hafsteinn Jónsson,
framkvæmdastjóri.
leigutakarnir yfirleitt vinsælar
hljómsveitir eða félög. Dans-
leikir eru vel sóttir hér, enda
er Röst eina stóra samkomu-
húsið á norðanverðu nesinu að
frátöldu húsinu í Stykkishólmi.
FV 8 1977
61