Frjáls verslun - 01.09.1977, Qupperneq 12
Deilumál innan „kerf isins” :
Hver er eigandi flugstöðvar-
innar á Keflavíkurflugvelli?
Greint frá ágreiningi og málaferlum sem upp hafa risift vegna
álagningar fasteignagjalds á flugstöftvarbygginguna
Er flugstöðin á Keflavíkurflugvelli okkar eign, eða á varnarliðið hana áfram eftir afhendinguna
1964? Um þetta eru skiptar skoðanir. íslenzka ríkisstjórnin telur ákveðið að varnarliðið eigi flug-
stöðina, enda þótt ríkissjóður sé skráður eigandi hennar í fasteignamatsskrá og hjá Brunabótafélagi
íslands. Hins vegar virðist engum blöðum um það að fletta að við erum eigendur að síðari tíma
viðbótum við flugstöðina, eins og skýrt er tekið fram í samningi utanríkisráðuneytisins og íslenzks
markaðar hf. frá 9. júní 1970.
Upphaf þess að á þetta er
látið reyna, er það, að Njarð-
víkurhreppur leggur fasteigna-
skatt á flugstöðina 1973 og
greiddi flugmálastjórnin á
Keflavíkurflugvelli hann fyrir
hönd ríkissjóðs; athugasemda-
laust. Árið eftir vill flugmála-
stjórnin fá skuldajöfnun á á-
lögðum fasteignaskatti á flug-
stöðvarbygginguna og gjöldum,
sem flugmálastjórnin greiddi
varnarliðinu fyrir þjónustu, en
þegar það fékkst ekki andmælti
flugmálastjórnin skyldu til
greiðslu skattsins og kom nú
fram sá skilningur, að flugstöð-
in væri eign varnarliðsins, en
ekki rkissjóðs. Njarðvíkur-
hreppur krafðist þá uppboðs á
flugstöðvarbyggingunni og
kvað lögreglustjórinn á Kefla-
víkurvelli upp þann úrskurð að
krafan skyldi ná fram að
ganga. Úrskurðinum var áfrýj-
að til Hæstaréttar, sem ómerkti
hann með dómi, þar sem ekki
hafði verið leitað álits yfirfast-
eignamatsnefndar áður en mál-
ið var lagt fyrir dómstóla. Mál-
inu var síðan skotið til yfir-
Hin umdcildu mannvirki á Vellinum. Húsnæði íslenzks mark-
aðar í viðbótarbyggingunni fremst.
fasteignamatsnefndar, sem
kvað upp þann úrskurð, að með
samningnum um afhendingu
hótel- og flugstöðvarbyggingar-
innar varnarliðs íslands til ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar, hefði
ríkisstjórnin tekið að sér rekst-
ur og viðhald flugstöðvarbygg-
ingarinnar, en að ríkissjóður
hafi ekki þá og e'kki síðar orðið
eigandi hennar. Varnarliðinu
ber ekki skylda til að greiða
12
FV 9 1977