Frjáls verslun - 01.09.1977, Qupperneq 33
í peningum, en mest held ég þó
að hafi verið svo, að menn
greiddu hreint ekki neitt orlof.
Nú held ég að stór hluti laun-
þega sé mjög ánægður með
núverandi fyrirkomulag og
þyki gott að fá þetta 100—
200.000 krónur til orlofsins, að
ég nú ekki tali um toppana, sem
fá allt að 'hálfri milljón. Og því
er ekki að neita, að margir
koma af fjöllum, þegar þeir fá
þennan glaðning.
í sambandi við orlofið er rétt
að taka fram að í fyrra var
fyrsta árið, sem við greiddum
vexti af orlofseign, að vísu ekki
háa, eða 5%, en þeir eru þó
betri en engir.
— Getið jiið fylgzt með því
að allir atvinnurekendur greiði
orlofið?
—■ Já. Við eigum að geta
fylgzt vel með því. Þetta er
allt í tölvu hjá okkur, skrá
yfir launþega og skrá yfir
launagreiðendur.
Hins vegar höfum við hingað
til látið fyrirtæki í friði með
orlofsgreiðslur, ef engir starfs-
menn kvarta, því satt að segja
höfum við haft alveg nóg með
hitt. En nú er orðin breyting
hér á, því talvan skrifar út alla
þá launagreiðendur, sem ekki
standa í skilum á gjalddögum.
Og við göngum svo í málið og
kippum því í lag.
— Eru það margir launa-
greiðendur, sem trassa orlofs-
greiðslur?
— Það er ekki stór hópur, en
hann er dálítið þrjózkur. Öll
stór og almennileg fyrirtæki
greiða orlofið skilvíslega.
— Hvaða ráð hafið þið á þá
þrjózku?
— Við göngum í málið með
lögtökum og látum, þannig að
ég held að mér sé óhætt að
fullyrða, að þegar upp er stað-
ið, þá sleppi enginn fram hjá
O'kkur.
1,5 MILLJÓN GÍRÓSEÐLAR
— Veizt þú, hver velta gíró-
kerfisins er?
— Ég veit bara um okkar
hluta; póstsins á ég við. Heild-
arinn- og útborganir á árinu
1976 námu 18,6 milljörðum
króna.
— Nokkra hugmynd um,
hvað mikið fer í gegn um
banka og sparisjóði?
— í upphæðum nei. En árið
1976 voru seldir 1.524.000 gíró-
seðlar og þar af vorum við með
838.000, eða 55%. Og hlutur
okkar hefur batnað á þessu ári,
því fyrstu níu mánuðina voru
seldir 1.359.000 seðlar og þar
af vorum við með 870.000 eða
64%.
— Hvað þarf ég að gera til
að fá gíróreikning?
— Þú labbar þig bara inn ó
næsta pósthús og fyllir út um-
sóknareyðublað með rithandar-
sýnishorni. Svo kemur þetta til
okkar og við sendum þér ýms
gögn, eins og reglugerðina um
gíróþjónustu Pósts og sima og
fleira.
— Þarf ég ekkert að leggja
inn á reikninginn til að opna
hann?
— Nei. Ekki krónu og það
kostar ekkert að opna gíró-
reikning. Þetta byggist allt á
því að við borgum heldur ekk-
ert út af reikningum, ef engin
innistæða er fyrir hendi.
— En gíróseðillinn sjálfur.
Hann kostar eitthvað?
— Já. Giróseðillinn kostar 60
krónur. Við veitum svo magn-
afslátt, sem er 10% við 5000
stykki og 20% við 10.000
stykki. Líknarfélögum veitum
við allt að 40% afslátt, en þau
eru líka alveg sér á parti.
— Hver er meðalnotkunin?
— Það er hreint ómögulegt
að gefa upp einhverja meðal-
notkun. Menn nota þetta svo
misjafnlega mikið, en notkun
til dæmis Pósts og síma hleypur
á tugum þúsunda seðla yfir ár-
ið og þessi líknarfélög, sem
yfirleitt eru með happdrætti
einu sinni á ári, nota þetta frá
30 og upp í 80.000 seðla. En
notkunin er svo hlaupandi eftir
einstaklingum og fyrirtækjum,
að það er hreint ómögulegt að
siá fram einhverri tölu sem
meðalnotkun. Annars erum við
í þessu spjalli búnir að nefna
bæði reikningafjöldann og
seðlafjöldann, þannig að þeir,
sem vilja, geta reiknað út frá
því, ef slíkt reikningsdæmi seg-
ir þeim eitthvað.
GÍRÓSEÐLAR í STAÐ
AFBORGUNARVÍXLA
— Ég hef heyrt því fleygt
að notkun gíróseðla við afborg-
unarkaup fari vaxandi?
— Það er rétt. Það hefur orð-
ið talsverð aukning á notkun
QO
oo
Nú vinna 30 manns við póstgíróþjónusituna. í fyrra voru seldir
1,5 milljónir gíróseðla og þar af var póstgíróþjónusta með 55%.
FV 9 1977