Frjáls verslun - 01.09.1977, Page 35
gíróseðla í stað aíborgunar-
víxla. Og ég held að þróunin
hljóti að verða sú að gíróseð-
illinn leysi víxilinn af hólmi á
þessu sviði, að minnsta kosti í
þeim afborgunarviðskiptum,
sem við þekkjum bezt milli
verzlana og einst.aklinga.
— Hvað vinna margir hjá
pcstgíróstofunni?
— Við erum 30 talsins. Og
innan skamms vænkast okkar
hagur heldur betur, hvað hús-
næðismálin varðar. Ég er nú
hér í gömlu lögreglustöðinni
sem eins konar útlagi, því ann-
að starfsfólk vinnur í húsi Pósts
og síma við Austurvöll. Og þar
liggur við, að hver sitji ofan á
öðrum.
En nú er verið að útbúa 500
fermetra hæð fyrir okkur í
Ármúla 6 og vonandi flytjumst
við þangað um áramótin.
BREYTINGAR Á GÍRÓ-
SEÐLINUM
— En hvað er hæft í því, að
þið séuð að breyta gíróseðlin-
um?
— Það er rétt. Samstarfs-
nefnd um gíróþjónustu er að
undirbúa breytingu. Sá seðill,
sem nú er í notkun, er þeirrar
makalausu náttúru, að hann
má nota til allra hluta; til að
millifæra, taka út af eigin
reikningi, leggja inn á reikn-
inginn, borga, þó þú hafir ekki
reikning og fá greiðslu, þó þú
hafir ekki reikning. Þessi seðill
er því talsvert flókinn og þær
breytingar, sem nú eru í bígerð,
ganga út á einföldun hlutanna.
Útkoman verður líklegast sú,
að við verðum með 4—5 gerðir
seðla eftir greiðslutegundum og
neðst á þeim verður svo rák
fyrir töluvuletur, eins og nú er
komið á ávísanir. Við verðum
nú að handvinna allt í kringum
þetta, en með nýju seðlunum
ætlum við að koma þessu öllu
í tölvu. Þessi handavinna er
orðin afskaplega mikið starf og
tímafrekt og til dæmis sást alls
ekki í starfsfólkið fyrir seðla-
haugunum, þegar verkfall
BSRB leystist á dögunum.
©Húsgagnaverzlun
Reykjavíkur hf.
Brautarholti 2 — Símar 11
Brautarholti 2 — Símar 11940 -12691
ATHUGIÐ!
Spira svefnsófinn kominn aftur.
Fjölbreytt húsgagnaúrval á tveimur hæðum.
Húsgagnaverzlun
Reykjavíkur hf.
FV 9 1977
35