Frjáls verslun - 01.09.1977, Blaðsíða 57
SJÁVARFRÉTTÍR
Séð yfir veitingasal Áningar í Mosfellssveit.
Áning:
Sæti fyrir
45 í
veitinga-
stofu
í mars sl. tóku nýir eigendur
við rekstri veitingastofunnar
Áningar h.f. í Mosfellssveit. Það
eru hjónin Óli Hermannsson og
Giuðríður Hannibalsdóttir. 1
samtali við FV sagði Óli að i
Áningu væri hægt að' fá heitan
mat á matmálstímum og auk
þess væri á boðstólum kaffi og
brauð og fleira.
— Hér er langmest að gera
í hádeginu. Við höfum rúm fyr-
ir 45 manns í sæti og oft er tví-
eða þrísetið í hádeginu. Það eru
margir sem eru orðnir fasta-
gestir hjá ckkur, og eru það
aðallega verktakahópar sem
vinna í nágrenninu. Aftur á
móti er lítið um það að hús-
mæðurnar í sveitinni komi
hingað til þess að fá sér kaffi-
sopa. Þætti okkur vænt um að
sjá meira til þeirra í framtíð-
inni, sagði Óli.
Yfir sumartímann er Áning
opin frá 8 að morgni til 9 að
kvöldi, en yfir veturinn er lok-
að klukkan 6 á kvöldin. Sagði
Óli að ferðamenn sæktu stað-
inn mikið yfir sumarið, en vet-
urinn væri mun daufari.
Eins og áður segir tóku þau
Óli og Guðríður við rekstri
staðarins í mars i vor sl. Kváð-
ust þau vera bjartsýn á fram-
tíð fyrirtækisins að fenginni
þeirri reynslu sem komin er
síðan þau hófu reksturinn.
Þverholt
— Það má eiginlega segja að
hér sé nokkuð stöðugt „renne-
rí“. Hingað koma krakkar úr
nágrenninu, til þess að kaupa
sér ýmislegt smávegis, vörubíl-
stjórar fá sér kaffi og þeir sem
eru í byggingaframkvæmdum í
nágrenninu koma gjarnan á
kaffitímum til þess að fá sér
hressingu.
Þetta sagði Svanur Gestsson,
eigandi Þverholts, sem verslar
með smávörur, kaffiveitingar
og auk þess selur hann bensín.
Svanur sagðist vera búinn að
reka þetta fyrirtæki um all-
langt skeið og væri bara ánægð-
ur með reksturinn. Hann sagð-
ist vera að byggja sjálfur í
Mosfellssveitini og kynni vel
við sig þarna.
koma nú út í hverjum
mánuði.
•
Upplag
SJÁVARFRÉTTA
er nú á sjöunda
þúsund cintök.
Fjórfalt stærra blað cn
nokkuð annað
á sviði
sjávarútvegsins.
SJÁVARFRÉTTIR
er Iesið af þeim, sem
starfa við
sjávarútveginn og
taka ákvarðanir
um innkaup vöru og
þjónustu fyrir
útgerð, fiskiðnað, skipa-
smíðastöðvar, vél-
smiðjur og aðra aðila á
sviði sjávarútvegs
og þjónustu-
greina hans.
•
Eflið viðskiptin við
sjávarútveginn
og kynnið vörur
og þjónustu í
S.TÁVARFRÉTTUM.
SJÁVARFRÉTTIR
Ármúla 18.
SÍMAR 82300 OG 82302.
FV 9 1977
57