Frjáls verslun - 01.09.1977, Side 60
Fyrirtaeki, framleiðsla
Frjálst framtak h.f. 10 ára:
Lesendahópur sérrita fyrir-
tækisins um 100 þúsund
Utgáfa nýs kvennablaðs í undirbúningi
Á þessu ári eru tíu ár liðin, síðan útgáfufélagið Frjálst' framtak hf. tók til starfa. Starfsemi fyrir-
tækisins hófst með því að það tók að sér útgáfu tímaritsins Frjálsrar verslunar, sem þá hafði komið
út síðan 1939. Orsök þess var sú, að útgáfa ritsins mátti heita. stöðvuð. Allir þeir, sem störfuðu að út-
gáfunni, gerðu það endurgjaldslaust, í frístundum, en höfðu ekki aðstæður til þess á þessum tíma.
Engin lausn var því sjáanleg á þessum vanda, önnur en að fela öðrum útgáfuna.
Jóhann Briem, framkvæmdastjóri Frjáls framtaks, á fundi með
starfsmönnum söludeildar fyrirtækisins.
Þegar varð ljóst að gerbreyta
þurfti efni, dreifingu og ann-
arri starfsemi blaðsins. Stór-
auka varð útbreiðsluna og auka
fjölbreytni efnis í blaðinu, til
að það þjónaði þeim tilgangi að
vera sérrit fyrir viðskiptalífið.
Eina leiðin var að blaðið yrði
unnið af kunnáttumönnum, sem
störfuðu í fullri vinnu.
FORYSTUMENN
í VIÐSKIPTUM FASTIR
ÁSKRIFENDUR
Þegar Frjálst framtak hf. tók
við útgáfu Frjálsrar verslunar,
var það eitt af fyrstu verkefn-
unum að auka mjög útbreiðslu
blaðsins. Aukin útbreiðsla og
aðrar breytingar kostuðu mikið
erfiði, raunar meira en menn
höfðu reiknað með, að sögn Jó-
hanns Briems, sem verið hefur
framkvæmdastjóri Frjáls fram-
taks frá upphafi, Blaðið hafði
fyrir tryggan áskrifendahóp
forystumanna í viðskiptalífinu.
Þeir sýndu því strax mikinn
áhuga, þegar hafist var handa
um að breyta rekstri blaðsins
og var stuðningur þeirra ómet-
anlegur.
Ritstjóri Frjálsrar verzlunar
er Markús Örn Antonsson.
ÞÖRF FYRIR
UPPSLÁTTARRIT
Fljótlega kom í ljós að ekki
var hagkvæmt að reka svona
blað eitt og sér og var þá hafin
athugun á því, á hvaða sviðum
blaðaútgáfu væri þörf fyrir
nýtt blað, en ekki varð úr fram-
kvæmdum á því sviði um sinn.
Könnun leiddi hinsvegar í ljós
að þörf væri fyrir uppsláttar-
rit um viðskiptalífið og var þá
hafinn undirbúningur að út-
gáfu handbókarinnar „íslensk
fyrirtæki“. Erfiðlega gekk að
koma því af stað, þó að 'þörfin
væri fyrir hendi. „íslensk fyr-
irtæki“ hefur nú komið út átta
fiO
FV 9 1977