Frjáls verslun - 01.09.1977, Qupperneq 78
--------------------- AUGLÝSING-------
MODEL MAG4SÍM:
Selja vöruna á 20% lægra
en I fataverzlunum
verði
Model Magasín, Tunguhálsi 9
framleiðir dömufatnað, barna-
fatnað og herrafatnað fyrir
innanlandsmarkað og auk þess
fatnað úr ofnum íslenskum ull-
ardúk fyrir Álafoss til útflutn-
ings, en 60% af framleiðslunni
er til útflutnings.
Aðallega eru framleiddar á
innanlandsmarkað dragtir, stak-
ar buxur og úlpur á dömur, en
nú í vetur er einnig framleidd-
ur herrafatnaður eins og úlpur,
buxur og sportjakkar. Á börn-
in eru frameiddar buxur og
úlpur.
Nýlega opnaði Model Maga-
sín eigin verslun að Laugavegi
61, þar sem framleiðslan er
seld á sama verði og í verk-
smiðjunni á 20% lægra verði,
en gerist í fataverslunum. Þann-
ig er hægt að fá dömudragt.,
jakka, pils, buxur og vesti úr
flaueli á aðeins 20 þúsund kr.
en einnig er unnt að kaupa
hverja flík staka, og úr öðrum
efnum.
Model Magasín selur ein-
göngu sína vöru í eigin versl-
un og verksmiðju, og allar flík-
urnar eru hannaðar og fram-
leiddar hjá fyrirtækinu.
Geysilega mikið hefur verið
framleitt af sjóliðajökkum, sem
hafa verið mjög vinsælir und-
anfarið. Einnig eru komnar á
markaðinn dömudragtir, en
slíkur fatnaður á áreiðanlega
eftir að verða allsráðandi í
tísku kvenna í vetur og næsta
sumar.
Mikið af þeim herrasport-
jökkum sem framleiddir eru
eru með leðri á vösum og oln-
bogum, og á það einnig við um
dömujakkana, og virðist sú
tíska vera að ryðja sér mjög til
rúms. Tweed efni eru eink-
um vinsæl um þessar mundir,
en Model Magasín notar eink-
um vönduð þýsk, ensk og
frönsk efni í framleiðslu sina.
Model Magasín framleiðir
einnig allan fatnað á flugfreyj-
ur og hlaðfreyjur Flugleiða og
einkennisfatnað fyrir starfsfólk
á söluskrifstofum félagsins er-
lendis.
Model Magasín hefur starfað
frá því árið 1960 og fyrri hluta
þessa árs unnu 20—25 manns
hjá fyrirtækinu.
AUGLÝSEMDLR ATHUGID:
Sérblað um Bretland kemur
út í lok nóvember. Kynnið
brezkar vörur fbjáls veuzlum
auylysingadeild
sími 82300
78
FV 9 1977