Frjáls verslun - 01.09.1977, Qupperneq 79
-----------------------AUGLYSING -------------
SÚTtJIMARVERKSIVIIÐJA SLÁTLRFÉLAGS SLÐLRLANDS:
Pelsjakkar úr lambaskinnum
Aðalframleiðsla Sútunarverk
smiðju Sláturfélags Suðurlands
eru skrautgærur og á þessu ári
verða framleidd milli 90 og 100
þúsund skrautgærur. Sláturfé-
lag Suðurlands rekur einnig
saumastofu, sem saumar pels-
jakka úr klipptum lambaskinn-
um ásamt öðrium vörum. 97%
af framleiðslu sútunarverk-
smiðjunnar er til útflutnings,
og aðalmarkaðssvæðin skiptast
að jöfnu milli Bandaríkjanna
og Evrópulanda, þó aðallega
Frakklands, . Bretlands og
Skandinavíu.
Ásgeir Nikulásson fram-
kvæmdastjóri sútunarverk-
smiðjunnar sagði, að horfur
væru sæmilegar á komandi ári,
en erfitt væri að koma verðinu
upp, enda æði mikil sam-
keppni.
Allmiklar breytingar hafa
orðið á sl. ári fyrir rekstur
þessa iðnaðar, allverulegar
launahækkanir hafa átt sér
stað, ennfremur hefur orðið
hækkun á ýmsum aðfengnum
föngum og orku.
í heiminum falla til 350—400
milljónir kindaskinna og hlut-
ur íslands hefur verið milli 800
og 900 þúsund skinn á ári, að
sögn Ásgeirs.
íslensku kindaskinnin eru
góð vara í hæsta gæðaflokki. En
þrátt fyrir gæðin og léttleika
skinnanna, gengur erfiðlega að
fá hráefnisverð sem bændUr
geta sætt sig við. íslensku
skinnin hafa m.a. verið notuð
í svokallaða mokkaskinnsfram-
leiðslu, en það eru aðallega
Finnar, Svíar og Pólverjar, sem
kaupa skinn til þeirrar fram-
leiðslu.
íslensku sútunarverksmiðj-
urnar hafa greitt það útflutn-
ingsverð, sem fengist hefur á
hverjum tíma, þrátt fyrir erfið-
ar kringumstæður í verðþróun
hér innanlands og harða sam-
keppni, að sögn ásgeirs.
Það eru innan við 14 ár síð-
an farið var að flytja íslenskar
gærur út í söltuðu ástandi á
tiltölulega lágu verði. Tilkoma
þessara sútunarverksmiðja sem
nú eru starfandi hefur áreiðan-
lega tryggt jafnara og betra
verð en áður var.
Mestur hluti skinnanna er
hvítur ,eða 75—80%, aðrir litir
eru aðallega grátt og svart, en
minna er um mórauð og flekk-
ótt skinn.
PELSJAKKAR ÚR
KLIPPTUM
LAMBASKINNUM
Saumastofan sem Sláturfélag
Suðurlands rekur saumar pels-
jakka á dömur og herra undir
merkinu Nova, svo og ýmsar
aðrar fallegar vörur eins og
húfur'og.lúffur.
Þessi íramleiðsla er nær ein-
göngu seld til útflutnings, að
mestu leyti til Kanada og
Bandaríkjanna.
Hér á landi kostar slíkur pels-
jakki um 40 þúsund kr., en út
úr verslun í Bandaríkjunum er
hann seldur fyrir þrefalda
þessa upphæð.
Sagði Ásgeir, að þetta atriði
sýndi, þó í litlu væri þá erfið-
leika, sem útflutningsiðnaður á
við að stríða hér á landi, en
það sem gerði þessum iðnaði
erfiðast fyrir væru nokkuð tið
mannaskipti, sem veldur því að
framleiðslan verður dýrari en
skyldi.
Sútunarverksmiðjan er einn-
ig að framleiða bílaáklæði úr
lambagærum, sem notið hafa
mikilla vinsælda, og eru þægi-
legar jafnt í hita sem kulda.
Sútunarverksmiðjan mun
hins vegar ekki um sinn fara
út í framleiðslu á mokkaskinn-
um, þar sem af því yrði allnokk-
ur kostnaður, og er fyrirtækið
ekki tilbúið til þess sem stend-
ur að fara út í frekari úr-
vinnslu.
FV 9 1977
79