Frjáls verslun - 01.11.1978, Page 23
Kristinn Sigtryggsson framkvæmdastjóri
manna stjórn, auk þess sem aöal-
fundur kýs tvær fastanefndir til
þess að gera tillögur aö leiðbein-
andi reglum á sviöi endurskoöun-
ar og reikningshalds. Einnig er
starfandi í félaginu sérstök nefnd,
sem hefur það hlutverk aö láta
uppi fyrir félagsins hönd rökstutt
álit um hvers konar fyrirspurnir
varöandi grundvallaratriði reikn-
ingslegs og endurskoðunarlegs
eðlis, sem fyrir félagið kynnu að
vera lagðar af Alþingi, fram-
kvæmdavaldi ríkisins, dómstólum
og einstökum félagsmönnum.
Einnig fellir nefndin úrskurði í
þeim málum, sem til hennar kann
að vera vísað varðandi reglur um
samskipti félaga í F.L.E.
Félag löggiltra endurskoðenda
heldur auk aðalfundar, mánaðar-
lega fundi yfir vetrartímann þar
sem tekin eru fyrir ýmis vandamál
líðandi stundar. Auk þess stendur
félagið fyrir ráðstefnum og náms-
skeiðum fyrir félagsmenn.
F.V.: — Svo virðist sem endur-
skoðendur vinni störf sín að miklu
leyti í kyrrþey. Er mikil þörf fyrir
þessa stétt á islandi?
Kristinn: — Endurskoðandi
þarf í sambandi viö starf sitt að
hafa aðgang aö bókhaldi og öllum
skjölum umbjóðenda sinna, ásamt
fundargeröum o.fl. er varðar fjár-
hagslega afkomu þeirra. Á honum
og starfsfólki hans hvílir því skil-
yrðislaus þagnarskylda um allt
það, sem hann kann aö fá vit-
neskju um í starfi sínu, varðandi
umbjóðendur sína. Það má því ef
til vill orða þaö svo að þessi störf
séu unnin að miklu leyti íkyrrþey.
Til þess að gera okkur grein fyrir
þörfinni fyrir þessa stétt manna
hér, skulum við fyrst athuga að
hverju endurskoðun beinist. Það
skýrist ef til vill best með því að
lesa eftirfarandi áritun á ársreikn-
ingi ákveðins hlutafélags.
..Ársreikning þennan fyrir hluta-
félagið X höfum við endurskoðað.
Ársreikningurinn hefur að geyma
rekstrarreikning fyrir árið 1977,
efnahagsreikning 31. desember
1977, fjármagnsstreymi árið 1977
og skýringar nr. 1-23. Við fram-
kvæmd endurskoðunarinnar voru
gerðar þær kannanir á bókhaldi
og bókhaldsgögnum, sem við
töldum nauðsynlegar.
Það er álit okkar, aö miðað við
viöteknar reikningsskilavenjur,
gefi ársreikningurinn glögga mynd
af rekstri félagsins á árinu 1977,
efnahag þess 31. desemþer 1977
og fjármagnsstreymi 1977.“
Reykjavík, 14. mars 1978.
Á þessari áritun sjáum við að
endurskoðunin þeinist að því, að
gefa vottun um að ársreikningur-
inn sé spegilmynd þess sem gerð-
ist á árinu og stööunni í árslok.
Eða m.ö.o. að stjórnendur séu hér
ekki að gefa villandi upplýsingar,
t.d. til að fegra afkomuna gagnvart
lánastofnunum eða hluthöfum.
Eftir því sem fyrirtækin stækka
og erfiðara verður fyrir hluthafa og
aöra hagsmunaaöila að hafa yfir-
sýn yfir það sem er að gerast,
verður þáttur endurskoðandans
mikilvægari til þess að skapa
traust í viöskiptum. Mér virðist því
að þörfin fyrir þessa stétt manna
sé alltaf að aukast hér á sviði end-
urskoðunarstarfa, en auk þess
veita endurskoðendur viðskipta-
mönnum sínum ýmsa aðra mikil-
væga þjónustu eins og ég nefndi
áðan, svo sem við bókhald, skatt-
skil og ýmis konar ráðgjöf.
F.V.: — Nú berast fréttir frá
Bandaríkjunum um mikinn tölvu-
þjófnað. Hvernig eru endurskoð-
endur undir það búnir að hafa eft-
irlit með tölvubókhaldi og notkun
tölva, sem nú fer vaxandi? Geta
klókir tölvusvindlarar leikið á
ykkur eins og aðra?
Kristinn: — Eins og við höfum
þegar vikið að hér að framan, er
megintilgangur starfa okkar sem
endurskoðenda, að gefa vottun
um réttmæti reikningsskila, en
ekki að koma í veg fyrir misferli.
Stjórn hvers fyrirtækis er ábyrg
fyrir því að í fyrirtækinu sé virkt
innra eftirlit, er tryggi þannig
skiptingu valds og ábyrgðar að
misferli séu fyrirbyggð. Hins vegar
byggjum við endurskoðun okkar
aö verulegu leyti á þessu innra
eftirlitskerfi, sé það til staðar, og
framkvæmum að öðru leyti það
umfangsmiklar kannanir á bók-
haldinu að líklegt má telja að
veruleg misferli komist upp við
endurskoöun.
Þegar um stór tölvukerfi er að
ræða láta endurskoðendur er-
lendis nú í auknum mæli útbúa
fyrir sig sérstök forrit til þess að
23