Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1978, Qupperneq 25

Frjáls verslun - 01.11.1978, Qupperneq 25
sannreyna þá þætti sem þeir þurfa að byggja á í tölvukerfinu. Því ætti misferli að vera jafn finnanlegt innan tölvukerfis eins og hvers annars kerfis. Hins vegar fer það eftir virkni kerfisins hversu fljótt það gefur viövörun. Þessi þáttur endurskoðunar- starfanna er að vísu nýr hér hjá okkur og mjög er mismunandi hvað endurskoðendur hafa haft mikil kynni af tölvum og notkun þeirra. Öll þekking og reynsla kemur hér að nokkru gagni, en víst er að í þessum tilvikum getum við notfært okkur reynslu hinna er- lendu starfsbræðra okkar og með aðstoð kerfisfræðinga tel ég víst að eftirlitskerfi af þessu tagi verði komin í notkun hér innan tíðar til þess að leysa af hólmi eldri end- urskoðunaraðferðir að þessu leyti. F.V.: — Nú heyrist stundum að á tímum óðaverðbólgu geti hefð- bundin reikningsskil gefið al- ranga mynd af hag og stöðu fyrir- tækja vegna þeirrar skekkingar, sem verðbólgan veldur. Til að koma í veg fyrir skekkjur af þessu tagi hefur verið beitt „vísitölu- reikningsskilum“ eða „gang- verðsreikningsskilum“ (current cost accounting). Er farið að beita þessum aðferðum hérlendis? Kristinn: — Verðbólgan er gömul ,,Grýla“ og vitað er að Bandaríkjamenn voru farnir að velta þessu vandamáli fyrir sér upp úr 1930, án þess að frekar væri þá aðhafst. Nú síðustu árin hefur hins vegar mikill skriður komist á þessi mál, einkum í Bretlandi og Banda- ríkjunum og ef til vill hefur olíu- verðbólgan átt sinn þátt í því. Ekki hafa þessi lönd þó ennþá tekið upp almenna notkun reiknings- skila, sem eru leiðrétt vegna áhrifa verölagsbreytinga, þar sem menn greinir enn á um aðferðir í þessu sambandi. Hér á landi hefur þegar verið unnið nokkuð starf við at- huganir á þessum málum, m.a. hefur próf. Árni Vilhjálmsson fylgst náið með framvindu þessara mála og ritað um þau. Þá hefur einn af starfsmönnum okkar hér, Símon Ásgeir Gunnarsson, viðskipta- fræðingur, lokið kandidatsritgerð við viðskiptadeild Háskóla íslands um vísitölureikningsskil. Hann tel- ur þessi reikningsskil eiga mikið erindi til okkar islendinga, enda er önnur eins verðbólga og hér geis- ar vandfundin annars staðar. Ef til vill verða gerðar tilraunir með vísi- tölureikningsskil fyrir einhverja aðila fyrir árið 1978, en víða þarf að breyta bókhaldi fyrirtækja til þess að þetta sé framkvæmanlegt. Gangverðsreikningsskil virðast mun erfiðari í framkvæmd. F.V.: — Telur þú að íslenzk fyrirtæki hafi almennt góða reglu á bókhaldi sínu og er mikið um að stjórnendur fyrirtækja hér á landi beiti bókhaldinu sem stjórntæki? Kristinn: — Bókhald hjá fyrir- tækjum hér fer nú batnandi ár frá ári. Þegar ég hóf störf á þessari endurskoðunarskrifstofu 1963 var bókhald fyrst og fremst fært af illri nauðsyn vegna skattauppgjörs hjá miklum þorra fyrirtækja. Með bættri menntun á viðskiptasviði og aukinni þekkingu stjórnenda, fer þeim fyrirtækjum fjölgandi ár frá ári, sem hafa gott bókhald og þeim stjórnendum, sem gera sér grein fyrir mætti vel skipulagðs bók- halds við stjórnun. F.V.: — Þær raddir heyrast að endurskoðendur aðstoði fólk og fyrirtæki við að svíkja undan skatti. Ef svo er gætirðu þá í lokin bent okkur á göt í skattalögunum? Kristinn:— Hvað eru skattsvik? Skattsvik eru ekkert annað en þjófnaður. Ef þú svíkur undan skatti ertu valdur að því að við hin þurfum að borga þeim mun meira. Ríkið þarf sitt ekki satt? En af einhverjum ástæðum lítur þjóðfélagið ekki svona á þetta. Skattsvik þykja sjálfsögð sjálfs- bjargarviðleitni á meðan smáþjóf- unum, sem stela nokkrum krónum fyrir brennivíni er umsvifalaust stungið inn. Hér er eitthvað ósam- ræmi í hlutunum, sem ef til vill mætti laga. Ekki þó með allsherjar fangelsun landsmanna, heldur með réttlátri löggjöf og áróðri sem geri almenningi betur Ijóst eðli þessara mála. Störf okkar á sviði skattamála beinast hins vegar að því að tryggja það að umbjóðendur okkar greiði ekki hærri skatta en lög- gjafinn ætlast til með setningu laganna. ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS ÚTIBÚ - SEYÐISFIRÐI Annast hvers konar innheimtur og önnur venjuleg bankaviðskipti. Símar: 97-2208 og 2308 25
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.