Frjáls verslun - 01.11.1978, Qupperneq 58
stiórnun
Stjórnunarfélagið: Hlutlaus
vettvangur samkeppnisaðila
Þórður Sverrisson, framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags fslands.
Fjallað um starfsemi
Stjórnunarfélags ís-
lands í vetur.
Bætt stjórnun, aukin hagræð-
ing, ný tækni við rekstur fyrirtækja
og stofnana eru allt atriði, sem
margir stjórnendur reyna að til-
einka sér í sem ríkustum mæli.
Stjórnunarfélag íslands er félag,
sem hefur að markmiði að vinna
að betri stjórnun í fyrirtækjum og
stofnunum hérlendis. í lögum fé-
lagsins segir: „Félaginu er ætlað
að efla áhuga á og stuðla að vís-
indalegri stjórnun, hagræðingu
og almennri hagsýslu í hvers
konar rekstri einstaklinga, félaga
og hins opinbera, og vinna að
samvinnu þeirra, sem slíkan
áhuga hafa. Með því vill félagið
stuðla að bættum atvinnuháttum
og aukinni framleiðni með þróun
verkiegrar menningar og vaxandi
almenna velmegun fyrir augum.
F.V. átti viðtal við Þórð Sverris-
son nýráðinn framkvæmdastjóra
félagsins og innti hann eftir,
hvernig starfsemi Stjórnunarfé-
lagsins væri hagað nú í vetur.
Mikil aðsókn að námskeiðunum.
Einn umfangsmesti hlutinn af
starfsemi félagsins eru hin fjöl-
mörgu stjórnunarfræðslunám-
skeið, sem það gengst fyrir. Nú í
vetur býöur félagið upp á 26 teg-
undir námskeiða, en þar af eru sex
ný námskeið og auk þess eru mörg
eldri námskeiðanna breytt og
endurbætt. Námskeiðin eru flest á
sviði stjórnunar, framleiðslu, fjár-
mála, og reikningshalds, en auk
þess eru nokkur námskeið um al-
menn efni fyrir einstaklinga.
í bæklingi Stjórnunarfélags ís-
lands um stjórnunarfræðslu fé-
lagsins segir, að öll námskeið sem
haldin eru séu sjálfstæðar eining-
ar, þannig að einstökum nám-
skeiðum má raða saman eins og
hver einstaklingur kýs sér. Þannig
er mögulegt að mynda röð nám-
skeiða á einstökum sviðum fyrir-
tækjarekstrar og fá með því móti
góöa innsýn í afmarkaða hluta
stjórnunarfræða.
Þórður sagði, að flest nám-
skeiöanna væru fullsetin, en þátt-
takendur á hverju námskeiði eru
frá 15-25 manns. Hvert námskeið
stendur yfir í 2-5 daga, eða frá 8 og
allt upp í 25 klukkustundir. Þátt-
tökugjöld eru þar af leiðandi mis-
munandi frá um 7 þúsund fyrir
stystu námskeiðin og allt að 38
þúsund á þeim lengstu. Innifalin
eru öll námsgögn og kaffiveitingar
og félagar í Stjórnunarfélagi ís-
lands fá 20% afslátt af þátttöku-
gjöldum. Námskeið hafa verið
endurtekin ef aðsókn hefur verið
mikil.
Leiðbeinendur á námskeiðum
Stjórnunarfélagsins eru flestir við-
58