Frjáls verslun - 01.11.1978, Qupperneq 62
hefði ekki verið til staðar, hefði ég
ekki viljað hafa nein afskipti af
málinu."
Aðstoð við greinaskrif og ræðu-
gerð
Robert E. Levinson, aðstoðar-
forstjóri hjá samsteypunni
American Standard Inc. fékk leið-
sögn í persónuuppbyggingu og
kynningu árið 1961. Þá vann hann
fyrir fjölskyldufyrirtæki sitt. Hann
fékk AT-mann frá New York,
Richard Conarroe að nafni, sér til
aðstoðar við að skrifa grein um
velgengni fyrirtækis síns, Steel-
craft, til birtingar í tímaritinu Busi-
ness Management. Eftir að þessi
grein birtist vann Conarroe í tvö ár
að samningu bókar með Levin-
son. Eftir að bókin kom út var
Levinson beðinn að skrifa greinar í
sérrit um viðskiptamál, halda fyrir-
lestra og rita blaðagreinar um
stjórnun fjölskyldufyrirtækja og
fleira þess háttar. Þær birtust í út-
gáfum stjórnvalda og heimildarrit-
um.
,,Eitt af markmiðum Steelcraft
var aö vekja athygli á tilvist sinni
með það fyrir augum að einhverjir
sýndu áhuga á að kaupa upp fyr-
irtækið", hefur Conarroe upplýst
nýlega. Levinson hefur sagt, að í
framhaldi af því umtali sem Steel-
craft fékk og hann persónulega,
hafi fjöldinn allur af fyrirtækjum
látið í Ijós áhuga á að kaupa
Steelcraft, sem sameinaðist
American Standard árió 1969. En
ritsmíðum og ræðuhöldum Levin-
son linnti ekki. Greinar eftir hann
birtust víða.
,,Þessi kynning hefur gert mér
auðveldara fyrir í starfi. Nýlega
flutti ég fyrirlestur um horfur í
húsnæðismálum. Hann var gefinn
út prentaður og sendur viðskipta-
vinum okkar. Þetta er allt auglýs-
ing", segir Levinson.
Fyrirtækið borgar
American Standard borgar
reikningana vegna kynningar
Levinson. Hann hefur lýst fyrir-
komulaginu á þessa leið:
,,Ég hef ekki fengið Dick
Conarroe til liðs við mig og sagt:
,,Komdu af stað kynningu á Bob
Levinson." Hann hringir gjarnan
og segir að þetta eða hitt tímaritið
vilji fá grein um hitt eða þetta efnið
og hann viti að ég hafi áhuga og
skoðanir á málinu. Ég hef oft
frumkvæðið sjálfur og skrifa þá
hugmyndir niður á blað. Hann fer
síðan yfir textann og lætur gefa
hann út.“
Þær þúsundir dollara, sem
bandarísk fyrirtæki eyða nú á
mánuði hverjum til kynningar á
forstöðumönnum sínum, eru yfir-
leitt skrifaðar á auglýsingareikn-
inginn. En öllum ábata af þessu
starfi fylgja þó ákveðin vandamál. í
fyrsta lagi verða forstöðumenn,
sem vilja koma af stað kynningar-
herferð í þágu fyrirtækis með sjálfa
sig í aðalhlutverki, að sannfæra
hluthafa og samstarfsmenn um að
slíkt borgi sig. Það gætir oft vissrar
tortryggni í garð fyrirtækja, sem
leggja mjög mikið upp úr þess
konar persónukynningum. Og
alltaf er sú hætta fyrir hendi að
bakslag komi í aðgerðir af þessu
tagi. ,,Ef þetta misheppnast eru
það slæmar fréttir", segir Levin-
son. ,,Menn eyðileggja mikið fyrir
sér ef þeir komast í sviðsljósiö og
Stjórnunarfélag íslands
Stjórnunarfélag íslands er félag áhugamanna sem vilja beita sér
fyrir hagræðingu og bættum rekstri fyrirtækja og stofnana hér-
lendis.
í vetur býður félagið upp á 26 tegundir námskeiða um ýmsa þætti
sem lúta að rekstri og stjórn fyrirtækja.
Sendið meðfylgjandi eyðublað
og fáið sendan 50 síðna upplýs-
ingabækling um námskeið fé-
lagsins.
Stjórnunarfélag íslands
Skipholti 37,105 Reykjavík
Sími82930
Undirritaður óskar eftir að fá sendan
upplýsingabækling um námskeiö
Stjórnunarfélags Islands.
Nafn.................................
Heimili..............................
Starf................................
62