Frjáls verslun - 01.11.1978, Síða 63
standast svo ekki prófiö. Ef ein-
hver semur fyrir mann texta á bak
viö tjöldin, sem maöur skilur svo
ekki eöa getur ekki fjallað um af
viti, þá er allt fyrir bí.“
Stefna að stöðuhækkun
Þrátt fyrir svo augljósa áhættu-
þætti stendur persónukynningin í
fullum blóma vestan hafs. Einn
hliöarþáttur hennar snýr sérstak-
lega aö hagsmunum forstöðu-
manna, sem stefna að stööu-
hækkun. Roston heitir AT-maður í
New York, sem auglýst hefur
þjónustu sína viö stjórnendur í
fyrirtækjum. Hann segir að kynn-
ingarstarfsemi stuðli að viður-
kenningu á stjórnendunum inni í
eigin fyrirtæki, sem sé mjög þýö-
ingarmikill undanfari stööuhækk-
unar upp á toppinn. Hún geti líka
átt þátt í aö önnur fyrirtæki geri
atvinnutilboð eða að ráðningar-
þjónustufyrirtæki geri fyrirspurnir
um menn.
Roston heitir því að skipuleggja
svo persónulega framgöngu um-
bjóðenda sinna að fjölmiðlar sýni
þeim áhuga í verki. Roston og þrír
aöstoðarmenn hans selja þjón-
ustu sína til hvers viðskiptavinar
fyrir 2500 dollara á mánuði og
veita ráðgjöf í fyllsta trúnaði. Þessi
starfsemi hófst með reglulegri
ráðgjöf við nokkra viðskiptamenn.
Nýleg auglýsing vakti fyrirspurnir
um 50 kaupsýslumanna með 40
þúsund dollara í árslaun eða það-
an af meira. Einn þeirra var í hópi
þriggja aðstoðarforstjóra í fyrir-
tæki, sem allir vildu komast í for-
stjórastól.
Richard Conarroe hefur lýst því,
hvernig stjórnendur vilja byggja
sig upp persónulega ekki síður en
fyrirtækið sem þeir vinna fyrir.
,,Það hringir til min maður og seg-
ist vilja ræða um kynningarstarf í
þágu deildarinnar, sem hann veitir
forstöðu í fyrirtækinu. Við ræðum
málið yfir hádegisverði og náung-
inn tekur fram, að hann eigi sjálfur
að vera eini talsmaðurinn. Þá fer
ég að leggja saman tvo og tvo og
spyr hver raunveruleg markmið
hans séu starfslega. Hann svarar
eitthvað á þennan hátt: ,,Ja. Mað-
ur er aldrei viss um hve lengi
maður verður á þessum sama
stað. Ef það væri hringt og mér
boðið nýtt starf myndi ég ekki
skella á."
Þannig er Ijóst að það er ekki
deildin, sem á að kynna heldur
persóna stjórnandans. Hann er að
leita eftir stöðuhækkun innan síns
eigin fyrirtækis eða hjá öðrum."
Eins og fíkniefni
Ýmsir forráðamenn stórfyrir-
tækja í Bandaríkjunum leggjast
eindregið gegn persónukynningu
stjórnenda. Thomas McCann,
fyrrum aðstoðarforstjóri kynning-
ardeildar United Fruit segir að
persónukynning sé eins og fíkni-
efni fyrír framgjarna stjórnendur.
,,Þeir fá aldrei nóg“, segir hann.
McCann ætti að vita hvað hann er
að segja. Hann rifjar upp hvernig
hann beitti sér fyrir jákvæðri um-
fjöllun um fyrrverandi forstjóra
United Fruit, Thomas E. Sunder-
land, í vikuritinu Time.
McCann segir aö Sunderland
hafi litið á blaöið. Þakkaði honum
lítillega fyrir að hafa komið þessu
til leiðar en spurt svo ósköp
hversdagslega: ,,Heyrðu Tom.
Hvernig fer maður að því að fá
forsíðumynd af sér í Tirne?"
Varahlutaverzlun
GUNNARS GUNNARSSONAR
SÍMI 1158 — EGILSSTÖÐUM
Varahlutir
Rafgeymar
Iljólbarftar
Snjókeðjur
Allt til lax- og silungsveiða
Gott úrval útvarps- og sjónvarpstækja
Fljót og góð þjónusta
LETTER
OFFSET
PRENT
- Prentum bækur, blöð, tímarit
og alls konar smáprent. —
— Fljót og góð þjónusta. —
NESPRENT
Guðmundur Haraldsson
^ .. ISM .
Pósthólf ÓS - Slml 7169
NESKAUPSTAÐ
63