Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1978, Qupperneq 71

Frjáls verslun - 01.11.1978, Qupperneq 71
Innlán töluvert yfir landsmeðaltali mvinnubankans á Eskifirði. Á Egilsstöðum hittum við einnig tyrir Magnús Einarsson, banka- stjóra Samvinnubankans þar á staðnum, en hann er jafnframt oddviti Egilsstaðahrepps. Við báðum Magnús að gefa okkur upplýsingar um stöðu fjármála og viðskiptamála á staðnum og hér- aðinu umhverfis hann. „Ef gefa á glögga mynd af fjár- málum og viðskiptamálum á þessu svæði, þarf að tiltaka svo marga þætti, að ógerlegt væri í stuttu máli“, sagði Magnús, „þannig að ég get varla nema tekið einhverja örfáa þætti til viðmiðunar. Ekki skortur á fé til bygginga Ef litið er fyrst á það sem að al- menningi snýr, er hægt að tiltaka tvennt, sem getur verið vísbend- ingar um stöðu fjármála. I fyrsta lagi þyggingar, í öðru lagi stöðu innlána í peningastofnunum á staðnum. Hér hefur í ár verið út- hlutað um fjörutíu lóðum, mest undir íbúðarhús. Framkvæmdir viö byggingar eru víöast hafnar og hefur ekki reynst skortur á fé til þeirra meiri en svo að útlán, innan ramma þess þaks sem stofnunum hér er sett, hafa náð að bæta þar algerlega úr. Um innlánin er jafn jákvæða sögu að segja, því staða þeirra um síöustu áramót, í þeim þrem peningastofnunum, sem hér eru fyrir hendi, Samvinnubanka, Búnaðarbanka og innlánsdeild Kaupfélags Héraðsbúa, var tölu- vert yfir landsmeðaltali. Inni- stæöufé nam þá um 320 þúsund- um króna á hvern íbúa á viö- skiptasvæði stofnananna, sem er fjörutíu þúsundum, eða svo, yfir landsmeðaltali. Þolanleg staða atvinnuvega Ef litið er aftur til atvinnuveg- anna, þá hefur staðan verið þol- anleg, þótt hún sé auðvitað erfið hér eins og annars staðar. Land- búnaðurinn er stærsta peninga- uppsprettan, þótt allnokkuð hafi skapast af feröamönnum, svo og Magnús Einarsson, bankastjóri stofnunum eins og RARIK, sem hér er með aöalstöðvar og hefur skapaö mikla atvinnu, Skattstofu Austurlands og fleiru. Egilsstaðir og Hlaðir eru þjónustumiðstöðvar og samgöngumiðstöð, sem auð- vitað skapar sitt, en engu að síður er landbúnaðurinn í sérflokki. Dreifing fjármagns, með útlánum peningastofnana og ööru, mark- ast mikið af þessari sérstöðu bændastéttarinnar. Bændur búa við feikn langan tímahring í pen- ingamálum og tillit hefur verið tek- ið til þess. Lifum ekki endalaust á þjónustu Það er hins vegar Ijóst að við getum ekki endalaust lifað af þjónustu. Við það verður einnig að miða, þegar drögin eru lögð að veitingu fjármagns út í atvinnulífið hér næstu árin. Okkur skortir orku og viljum fá virkjun hér inni í Fljóts- dal, því þá væri mögulegt að byggja upp vinnslu þeirra hráefna sem fyrir eru, svo og ef til vill iðnað af einhverju tagi. Kemur þar margt til greina, svo sem vinnsla á kjöti í neytendapakkningar, ullarþvottur og vinnsla á gærum, og svo fram- vegis. Einnig getur ýmis konar samsetningariðnaður átt heima hér. Þess má minnast að við höf- um nálgast Evrópu mjög með til- komu Smyrils og héðan hefur ver- ið flutt út hey til Færeyja undan- farið, svo menn eru að byrja að uppgötva möguleikana sem fyrir hendi eru og nýta þá. Hrepparígur gerir samstarf erfitt Því er ekki að neita að iönaður- inn hefur verið afskiptur hvað varðar fjármagn hjá okkur eins og annars staðar. Úr því þarf að bæta, bæöi með stuöningi við nýjar hug- myndir, svo og með því að styðja betur við bakið á þeim iðnaði sem fyrir er, svo sem byggingariðnaði og prjónaiðnaði. Iðnaðurinn þarf líka fjármagn, eins og landbúnað- urinn, og væri í því tilliti hepþilegt að hægt væri að skipuleggja fjórðunginn í heild, svo hér sé ekki hver ofan í annars skál. Hins vegar hefur það reynst erfitt að koma á samstarfi í viöskipta- og atvinnu- lífinu hér, einkum vegna hreppa- rígs, þótt Ijótt sé frá að segja. Það má svo ekki skilja við þetta án þess að skjóta því að, að við teljum okkur ákaflega afskipt hér með lánsfé úr opinberum sjóðum. Sem dæmi, því til stuðnings, má benda á að hér var skóverksmiðja látin verða gjaldþrota vegna ör- fárra milljóna króna, meðan tug- um, eða hundruðum milljóna er dælt í að halda fyrirtækjum gang- andi annars staðar. Við teljum á- kaflega óheppilegt að mismunum af þessu tagi eigi sér stað.“ 71
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.