Frjáls verslun - 01.11.1978, Side 74
Þurfum að fá fólk
frá hinum enda heimsins
Á Seyðisfirði hittum við að
máli bæjarstjórann, Jónas
Hallgrímsson, sem að vísu taldi
sig ekki mikið vita um við-
skiptamál, en féllst þó á aö
segja okkur ofurlítið frá.
,,Það sem okkur vantar hér
eru fyrst og fremst örari sam-
göngur við aðalmarkaðssvæði
landsins", sagði Jónas. ,,Við
verðum að fá öruggari og tíðari
samgöngur að vetrinum, sem
sérstaklega er vandamál nú,
því fólk sættir sig einfaldlega
ekki við að fá ekki brauö,
grænmeti og aðrar nauðsynja-
vörur svo vikum og jafnvel
mánuðum skiptir.
Höfuðnauðsynin, að mínu
mati, er að bæta viö skipakost
Skipaútgerðar ríkisins.
Hér var ákaflega blómleg
verzlunáðurfyrr. Þásóttu menn
úr sveitunum hér í kring hingað
til viðskipta. Nú hefur þaö
Jónas Hallgrímsson, bæjarstjóri
breytzt. Almenn verzlun hér er í
höndum útibús frá Kaupfélagi
Héraðsbúa, því kaupfélagið
okkar fór á hausinn árið 1970.
Auk þess hafa tveir ungir og á-
ræðnir menn sett hér upp
verzlun með matvöru og ný-
lenduvöru. Ber hún nafnið
Brattahlíð og virðist þeim ekki í
hug að láta deigan síga.
Svo er hér verzlun með
smærri útgerðarvöru og járn-
vöru, kvenfataverzlun, sport-
vöruverzlun og apótek.
Hvað varðar framtíðarupp-
byggingu, er ekki gott að spá.
Okkur skortir ákaflega mann-
afla í þær greinar sem fyrir eru,
svo ég veit ekki hvernig á að
bæta við. Undanfarin ár höfum
við þurft að flytja inn fólk frá
hinum enda heimsins og fyrir-
sjáanlegt er að svo verði aftur í
vetur.
Hins vegar teljum viö okkur
jafnbezt setta með aðbúnað við
uppbyggingu iðnaðar, einkum
til að þjóna sjávarútvegi.
Kaupum
allar tegundir
fisks
Seljum
ÍS
Framleiðum
hraðfrystan fisk
Saltfisk
Skreið
Útgerð:
HÓLMATINDUR SU 220
Hraðfrystihús
Eskifjarðar hf
Sími 97-6123
2
74