Frjáls verslun - 01.11.1978, Qupperneq 77
Fyrirtækin fá, en afkoma
fólks sæmileg á Breiðdalsvík
Á Breiðdalsvík hittum við fyrir
Sigmar Pétursson, sveitarstjóra.
Hann er nú að láta af störfum, við
tekur Helgi V. Guðmundsson,
sem verið hefur sveitarstjóri á Fá-
skrúðsfirði, en engu að síður
samþykkti hann að spjalla við
okkur um staðinn.
,,Ég held þetta þorp hljóti að
eiga framtíð fyrir sér“, sagði Sig-
mar, ,,þótt svo það gangi ef til vill
eitthvað treglega í atvinnu- og við-
skiptalífinu eins og er. Þetta er lít-
ið, hér starfa fá fyrirtæki, verzlun
sáralítil á staðnum, en samt hefur
ekki verið hægt að segja að hér
hafi veriö atvinnuleysi, þannig aö
afkoma fólks er sæmileg.
Héðan eru nú gerðir út tveir
bátar, um níutíu tonn hvor. Hér er
eitt frystihús, Hraðfrystihús Breið-
dælinga, eitt vélaverkstæði, eitt
trésmíðaverkstæði og þar með eru
starfandi fyrirtæki á staðnum upp
talin. Nei, annars, hér er líka
steypustöð.
Hráefni í fiskvinnslu stopult
Við áttum hálfan skuttogara, á
móti Stöðvfirðingum. Hér voru tvö
fyrirtæki, Hraðfrystihúsið og svo
Bragi h.f., sem var með saltfisk-
verkun, sem áttu helming togar-
ans. Stöðvfirðingar fengu annan
togara, seldu sinn hlut í þessum til
Fáskrúðsfjarðar og þá neyddumst
við til að selja okkar hlut líka. Ég tel
að þar hafi ráðið mestu um stefna
bæði Landsbanka og Fram-
kvæmdastofnunar. Við fengum
einfaldlega enga fyrirgreiðslu og
þykir það hart að svona misjöfn á-
herzla skuli vera lögö á staöi. Það
hefði ekki þurft að styðja við bakið
á okkur til að kaupa nema helming
hans, en Fáskrúðsfirðingar þurftu
að kaupa hann allan.
Þessi staða gerir að verkum að
hráefni í fiskvinnslu er stopult hér
hjá okkur.
Verzlun á staðnum er aðeins
ein. Útibú frá Kaupfélagi Stöðv-
firðinga. Hér er engin peninga-
stofnun starfandi. Bankamál eru
afgreidd af umboðsskrifstofum,
einni frá Samvinnubankanum á
Stöðvarfirði, og annarri frá Út-
vegsbankanum á Seyðisfirði.
Þjónustu sækja menn héðan á
Egilsstaði og víðar.
Fjölbreytnina vantar
Hvað framtíðina varðar er auð-
vitað ýmislegt á prjónunum. Slát-
urfélag Suðurfjarða, það er Breið-
dalsvíkur, Fáskrúðsfjarðar og
Stöðvarfjarðar, er að reisa hér
sláturhús. Það er að fara í gang
núna og á að taka við afurðum
bænda. Jafnvel er hugsað að það
geri innkaup á stærstu liðum fyrir
þá, svo sem áburði og fóðurvöru.
Annað er ekki svo vel athugað
að hægt sé frá að segja. Hér væri
auðvitaö vel hugsanlegt að setja
upp smáiðnað, eins og Samband-
ið er að setja upp. Prjónaiðnað,
saumaiðnað og fleira. Mín skoðun
er sú að það verði að byggja þetta
á fleiru en sjávarútvegi, fá fjöl-
breytni, ef takast á að festa fólk."
Sigmar fyrrverandi sveitarstjóri tekinn tali á förnum vegi.
77
V