Frjáls verslun - 01.07.1980, Blaðsíða 23
„Hundóánægðir með
greiðslukortavið-
skiptin".
Hótel Saga er meðal þeirra hót-
ela sem viðurkennt hafa greiðslu-
kort sem gilda greiðslu í mjög
langan tíma. Að sögn Konráðs
Guðmundssonar skiptir hótelið viö
þrjú greiðslukortafyrirtæki, Diners
Club, American Express og Euro-
card. Á síðasta ári nam heildar-
velta hótelsins í þessum viðskipt-
um um 110 milljónum króna, sem
skiptist svo til alveg jafnt milli
greiðslukortafyrirtækjanna.
„Þaö er alveg óhætt að segja að
við erum alveg hundóánægð með
þann afslátt, sem við þurfum að
veita af kostnaðarverði þjónustu
okkar til greiðslukortafyrirtækj-
anna. Afslátturinn er frá 3.5% og
upp í 4,5% af brúttókostnaði fyrir
hvern viöskiptavin og inni í þessari
tölu er líka söluskatturinn."
Þrátt fyrir þetta sagði Konráð, að
viðskipti með greiðslukort væru
nauðsynleg vegna þeirrar gífur-
legu útbreiðslu sem þau nytu í
heiminum. Konráð sagðist ekki
sjá, hvernig íslendingar gætu
sniðgengió slík viðskipti án þess
að tapa á því, vegna þess hve þau
væru orðin almenn í heiminum og
ferðamenn reiddu sig mjög mikiðá
að geta notað þau.
Konráð sagðist aðspurður ekki
vera á þeirri skoðun að hóteliö
þyrfti að skipta við Kreditkort h.f.
hér á landi enda þótt það hefði
samning við Kreditkort í Svíþjóð.
„Eiga ekki að gera
upp á milli
Eurocardfyrirtækja.“
Frjáls verslun sneri sér aftur til
Gunnars Bæringssonar, fram-
kvæmdastjóra Kreditkort h.f. og
bar undir hann ummæli forráða-
manna Sögu og Flugleiða þess
efnis að þeim bæri ekki að skipta
við Kreditkort h.f.
Gunnar sagði að í samningi
þeim sem þessi fyrirtæki hefðu
samþykkt við Eurocard-fyrirtækið í
Svíþjóð stæði eftirfarandi:
„Fyrirtæki sem eru þátttakendur
í Eurocard-kerfinu samþykkja að
taka sem greiðslu fyrir alla vöru og
þjónustu, sem þau venjulega láta í
té, öll Eurocardkort, öll Master-
charge og Interbankkort sem sýna
merkið I og síðan öll Acsess kort.“
Samkvæmt þessu sagði Gunnar
væru ofangreind fyrirtæki að
brjóta þá samninga sem þau hefðu
undirritað, taki þau ekki á móti ís-
lensku Eurocard-greiðslukortun-
um.
Hvað eru greiðslukort?
Skýringar á viðskiptum
með þau
Greiðslukort eru flestum Islendingum framandi
fyrirbæri, enda þótt margir hafi heyrt minnst á þau.
Því er ekki úr vegi að gera nokkra grein fyrir eðli
greiðslukorta og þeirra viðskipta sem fram fara með
þeim.
Greiðslukort er yfirleitt lítið plastspjald með upp-
hleyptum stöfum þannig að hægt er að þrykkja mynd
þess yfir á annað blað. Handhafi kortsins er í lang-
flestum tilvikum skráður eigandi þess. Nafn hans er
ritað á kortið ásamt rithandarsýnishorni. Gegn fram-
vísun kortsins er eiganda þess heimilt að kaupa
vörur í þeim verslunum og fyrirtækjum sem taka það
gilt sem greiðsluviðurkenningu.
Greiðslukort eru korthöfum algerlega að kostnað-
arlausu. Korthafar bera engan kostnað af þeirri
þjónustu, sem greiðslukortafyrirtækið eða önnur
fyrirtæki veita. Kostnaðurinn fyrir þessa þjónustu er
greiddur með því að fyrirtæki veitir greiðslukortafyr-
irtækinu nokkurra prósenta afslátt af verði vara
sinna eða þjónustu. Þessi afsláttur getur numið allt
að 4.5% af heildarverðmæti vörunnar.
Greiðslukortafyrirtæki eru lánastofnanir. Þau
tryggja korthöfum greiðslufrest í vissan tíma, hér á
landi allt að einum mánuði. Greiðslukortafyrirtæki
greiða fyrirtækjum þeim, sem korthafar skipta við,
jafnóðum og reikningar berast. Þau ganga nánast í
ábyrgð fyrir korthafa, ábyrgjast að þeir greiði sína
reikninga.
Hjá Kreditkort h.f. ganga hlutirnir líkt og hér hefur
verið á minnst, en þóerekki úr vegi að fara enn nánar
út í þessa sálma.
Umsækjandi um greiðslukort hjá Kreditkort h.f.
útfyllir sérstakt eyðublað, þar sem hann skýrir frá
sínum högum og þeirri upphæð sem hann óskar að
fá úttektarheimild á mánaðarlega. Sé umsækjandi
hvergi á vanskilaskrám má gera ráð fyrir að um-
sóknin verði samþykkt. Einu útgjöld korthafans er
sérstakt kortagjald við endurnýjun greiðslukortsins
hverju sinni. Ailur annar kostnaður er greiddur eins
og áður var frá sagt. Kreditkort h.f. krefst þess að
handhafi greiðslukortsins greiði 10% af þeirri upp-
hæð, sem hann hefur úttektarheimild fyrir á sinn
reikning fyrirfram.
Til tryggingar greiðslu krefst Kreditkort h.f. þess,
að korthafi samþykki skuldaviðurkenningu upp á
þrefalda þá upphæð, sem úttektarheimildin hljóðar
upp á. Þetta skuldabréf er síðan varðveitt í Verslun-
arbanka íslands og ekki snert fyrr en útséð er um að
skuld handhafa við fyrirtækið verði greidd með öðru
móti.
f byrjun hvers mánaðar sendir Kreditkort h.f. kort-
höfum síðan útskrift af viðskiptum þeirra með
greiðslukortin og ber þá korthafa að greiða skuld
sína innan tilsetts tíma.
25