Frjáls verslun - 01.07.1980, Side 44
langar finni alltaf eitthvað athygl-
isvert og skemmtilegt í Bella Cent-
er. Ekki þarf annað en að kíkja inn í
fastamarkaðinn, sem opinn er allt
árið. Þar getur að líta norræna
gæðaframleiðslu á sviði fatnaðar
og einnig, og þá ekki síður, stór-
brotið sýnishorn af húsgögnum af
öllum stærðum og gerðum frá
framleiðendum á Norðurlöndum,
sem eiga tæpast nokkurn sinn líka
á því sviði þó leitað sé um alla
heimsbyggðina.
íslenzku ullartízkuvörurnar eru
fastur liður á Scandinavian
Fashion Week. Reynsla íslenzkra
fataframleiðenda af þátttöku í
sýningum í Bella Center hefur ver-
ið mjög góð og forstöðumaður Út-
flutningsmiðstöðvar iðnaðarins,
Úlfur Sigurmundsson, hefur orðað
það svo, að Bella Center hafi
raunverulega opnað íslenzkum
framleiðendum leið að Norður-
landamarkaði fyrir þessa vönduðu
framleiðslu sína. En hver er staðan
nú, þegar það hefur um langt
skeið verið árviss viðburður að
ullarvörufyrirtækin fari með flíkur
sínar og stilli þeim upp á sýn-
ingarbásum í Bella Center? Hver er
markaðsstaða þessarar vöru eftir
áralanga kynningu á Norður-
landamarkaði og hlýzt hlutfallsleg
söluaukning af kaupstefnunum í
Bella Center eða eru þær nauð-
synlegar til að halda í horfinu eins
og nú er komið?
Syndir Islendinga
Even Kjersner, sem er forstöðu-
maður Scandinavian Fashion
Week, hefur mjög náið fylgzt með
uppbyggingu markaðar fyrir ís-
lenzkar ullarvörur á Norðurlönd-
um og þó einkanlega í Danmörku.
Hann hefur góða yfirsýn yfir mark-
aðsstöðuna og því var fróölegt að
heyra álit hans þegar hann var
beðinn að líta málin gagnrýnum
augum. Kjersner sagði blátt áfram,
að íslenzku ullarvörurnar væru
orðnar alltof dýrar við þær að-
stæður, sem almennt ríktu í efna-
hagsmálum Vestur-Evrópu. Hann
benti á það sem dæmi, að ein
stærsta fataverzlun með íslenzkar
vörur í Kaupmannahöfn, verzlun
Kaufmanns á Strikinu, hefði lækk-
að verð á íslenzkum ullarfatnaði
stórlega, um allt að helming í
febrúar og auglýst útsölu, því að
stór lager virtist liggja óhreyfður.
Kjersner kenndi engu öðru um en
alltof háu verði.
Kjersner taldi tvö vandamál hafa
verið stærst í viðskiptum danskra
fataverzlana við íslenzka framleiö-
endur: í fyrsta lagi verðið og í öðru
lagi vanefndir (slendinga í sam-
bandi við afhendingu á pöntunum,
sem gerðar hefðu verið. Sagði
Kjersner að íslendingar yrðu al-
varlega aö íhuga stöðu sinnar
framleiðslu í Ijósi þess, að í Dan-
mörku væru tvö fyrirtæki, sem
sérhæfðu sig í „íslenzkri" ullar-
framleiðslu, þaö er að segja Stobi
og Rono, sem byði ullarfatnað á
helmingi lægra verði en fyrirtækin
á íslandi. Hann undirstrikaði þó að
Feróafólk
Leggiö leiö ykkar um Borgarfjöröinn,
meö viökomu á Akranesi.
Matur — Kaffi — Gisting.
BARUGOTU — SIMAR (93) 2020 (93) 2144
S. 93-7120
S. 93-7276
Barnaföt
Táningaföt
Gjafavörur
Úr og skartgripir
í miklu úrvali
Verzlunin ísbjörninn
Borgarbr. 1 Borgarnesi
46