Frjáls verslun - 01.07.1980, Page 53
Hörpudiskurinn á við afla
tveggja skuttogara
Hörpudiskvinnslan í Stykkis-
hólmi er landsþekkt. Þaö er Sig-
uröur Ágústsson h.f. sem sér um
vinnslu hörpudisksins í mjög full-
komnu verksmiöjuhúsi. Um 60
manns starfa aö skelfiskvinnslunni
í Hólminum, en hann er aö mestu
leyti handunninn. Sjö stórir bátar
og tvær trillur sjá um veiðarnar, en
mjög gott eftirlit er með veiöunum
af hálfu Hafrannsóknarstofnunar-
innar.
Siguröur Ágústsson h.f. flytur
sjálfur út skelfiskinn, þar sem aö í
upphafi náðustekki samningar við
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
og Coldwater um vinnslu þessarar
sjávarafurðar, en það hefur sýnt
sig að gæöi skelfisksins úr Stykk-
ishólmi eru hin mestu í heiminum
ef dæma má af samanburðarpróf-
unum sem Hafrannsóknarstofn-
unin stóð fyrir fyrir nokkrum árum.
Skortur á iðnaðarmönnum í
Ólafsvík
Sævar Þórjónsson rekur Lita-
búðina í Ólafsvík. Litabúðin er
málningarvöruverslun enda er
Sævar sjálfur málarameistari og
verktaki í þeirri grein. Að auki
verslar hann með teppi og gólf-
dúka.
Sævar sagði það vera svolítið
erfitt að standa í verslun í Ólafsvík.
Viðskiptin væru árstíðabundin og
það sem meira er, að það veltur á
sjávarafla, hversu mikil viðskiptin
eru. Veiðist vel, þá er mikið versl-
að, enda er Ólafsvík útgerðarbær
og þar byggist allt meira eöa
minna á útgerð og vinnslu sjávar-
afla.
Sævar sagði að flestir sem vett-
lingi geta valdið fari í fiskvinnslu
eða á sjóinn og það gerir það að
verkum, að mikill skortur er á iön-
aðarmönnum þarna um slóðir og
þyrfti að sækja þá jafnvel til
Reykjavíkur, en allir sjá hversu
mikið óhagræði er í þeirri tilhögun.
Borghlldur á Hótel Bjargl
í Búðardal rekur Borghildur
Hjartardóttir Hótel Bjarg og það
hefur hún gert í um þrjátíu ár og á
þeim tíma hafa skipst á skin og
skúrir í þessum rekstri. Árið 1963
brann hótelið, en hún hélt ótrauð
áfram, byggði nýtt hús og hélt
rekstrinum áfram eins og ekkert
hefði í skorist. Önnur öfl en höf-
uðskepnurnar hafa reynst henni
og hótelinu skeinuhættari, en það
eru dyntir stjórnvalda. Það var og
er ferðamálum landsmanna í hag
að staösett sé hótel í Búðardal, en
þrátt fyrir hvatningu yfirmanna
ferðamála þá hefur verið komið
aftan að Borghildi, þar sem Eddu-
hótelin eru og sumarhótelið í Sæ-
lingsdal. Þessir aðilar lokka frá
henni dvalargesti yfir sumartím-
ann, en að vetrarlagi er lítið um
gestakomurog því sjá þessiraöilar
sér ekki hag í því að hafa opið
þann tíma ársins.
Hótel Bjarg getur hýst allt að
tuttugu manns í einu. Veitingaað-
staöa er þar og hægt er að fá
heimabakaðan mat og kökur sem
gerir það aö verkum að hótelið
virkar hlýlega á næturgesti og þar
líður þeim vel.
,,Mér þykir gaman að þessu og
mér finnst það eftirsóknarvert að
hugsa vel um mína gesti og ég er
ánægðust þegar þeir bera hótel-
inu vel söguna, — það held ég að
sé besta auglýsingin."
Til verndar Öllu timbri í bátum og byggingum
Þorsteinn Blandon heildverslun Bókhlöðustíg 7 — Reykjavík — Sími 13706
55