Frjáls verslun - 01.03.1988, Blaðsíða 7
Ritstjórnargrein
Samningar ísjálfheldu
Nú er lokið löngu og hörðu verkfalli
verslunarmanna. Því er ekki úr
vegi að vega og meta kostnað við
verkfallið og það sem upp var
skorið.
Ljóst er að verkfallið hafði gífurlegan
kostnað í för með sér. Verkfallsfólk sjálft
varð ekki aðeins fyrir launatapi heldur
misstu mörg fyrirtæki af tekjum sem skiptu
tugum ef ekki hundruðum milljóna króna,
einkum fyrirtæki í flutningum og ferðaþjón-
ustu. Þá er ótalið það tjón sem Island varð
fyrir sem ferðamannaland við þann álit-
shnekki að geta ekki tekið á móti stórum
hópum manna sem búnir voru að skipu-
leggja ráðstefnur hér á landi með löngum
fyrirvara.
Það er réttur vinnandi fólks að geta lagt
niður vinnu til að knýja á um gerð kjara-
samninga. Verkbönn eru sambærilegur rétt-
ur vinnuveitenda. Aðilar vinnumarkaðarins
hafa ekki aðeins réttindi heldur einnig
skyldur. Ein stærsta skylda þeirra er að
varðveita friðinn. Verkföllum á aðeins að
beita í ítrustu neyð því þau bitna á svo mörg-
um sem ekki eiga hlut að máli og veikja
þjóðfélagið í heild.
Strax í upphafi mátti sjá að samningar
verslunarmanna voru í sjálfheldu að því
leyti að allar aðrar stéttir launamanna voru
búnar að áskilja sér sömu hækkanir ef versl-
unarmenn fengju meira en aðrir voru búnir
að fá. Því var ekki eingöngu tekist á um laun
verslunarfólks heldur einnig og miklu frem-
ur um almenna launaþróun í landinu. Bog-
inn hefur þegar verið spenntur í þeim efnum
og lítið má út af bregða til þess að verðbólg-
an fari á skrið á nýjan leik. An tillits til þess
hvort krafa verslunarmanna var réttmæt
eða ekki mátti sjá að barátta þeirra var töp-
uð fyrirfram. Því má segja að lagt hafi verið
út í mikinn herkostnað þrátt fyrir að von um
ávinning hafi ekki verið mikil.
Löngu er tímabært að endurskoða vinnu-
lag við gerð kjarasamninga og skipulag aðila
vinnumarkaðarins. Til dæmis er óviðunandi
að fjöldi verkalýðsfélaga — hátt á annar tug-
ur — geti hvert og eitt stöðvað flugsamgöng-
ur til og frá landinu. Nær væri launafólk
væri í starfsgreinafélögum þannig að fáeinir
menn í hverju fyrirtæki geti ekki lamað
starfsemi þess. Einnig væri hugsandi að
fyrirtæki semdu beint við starfsmannafélög
að minnsta kosti stærstu fyrirtækin.
Frjáls
verslun
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-,
efnahags- og atvinnumál
RITSTJÓRI OG
ÁBYRGÐARMAÐUR:
Kjartan Stefánsson
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sjöfn Sigurgeirsdóttir
LJÓSMYNDARAR:
Grímur Bjarnason
Gunnar Gunnarsson
Kristján Einarsson
ÚTGEFANDI:
Frjálst framtak hf.
Tímaritið er gefið út í samvinnu
við samtök í verslun og viðskiptum
SKRIFSTOFA OG
AFGREIÐSLA:
Ármúli 18, sími 82300
Auglýsingasími 31661
RITSTJÓRN:
Bfldshöfði 18, sími 685380
STJÓRNARFORMAÐUR:
Magnús Hreggviðsson
AÐALRITSTJÓRI:
Steinar J. Lúðvíksson
FRAMKVÆMDASTJÓRI:
Halldóra Viktorsdóttir
ÁSKRIFTARVERÐ:
1.315 kr., jan. - júní,
(eintak í áskrift 329 kr.)
LAUSASÖLUVERÐ:
399 kr.
SETNING; PRENTUN OG
BÓKBAND:
Prentstofa G. Benediktssonar
LITGREININGAR:
Prentmyndastofan hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni
og myndir
*
7