Frjáls verslun - 01.03.1988, Blaðsíða 62
Skjalastjórnun
TEXTI: JÓHANNES TÓMASSON MYNDIR: GRÍMUR BJARNASON
Hvað á að geyma —
hverju á að henda?
— Rætt við James C. Bennet prófessor
Síðustu árin hefur verið mjög
ör þróun í Bandaríkjunum í öllu
er snertir skjalamál, þ.e. skjala-
myndun, stjórnun, grisjun og
geymslu skjala og er það eðli-
legt í nútímaþjóðfélagi. Umfang
hvers kyns upplýsinga sem við
þurfum að nota dags daglega eða
að eiga auðveldan aðgang að er
alltaf að aukast. Öll ákvarðana-
taka í samfélagi nútímans bygg-
ist á notkun upplýsinga og heim-
ilda og það gildir bæði um stjórn-
endur ríkisins og stofnana sem
og einkafyrirtækja. Því þurfa
upplýsingar í hvers kyns formi
að vera vel skipulagðar og að-
gengilegar.
Þetta segir James C. Bennett pró-
fessor frá Bandaríkjunum vera inntak
skjalastjómunar nútímans en hann
var nýverið í Reykjavík sem aðalfyrir-
lesari á námstefnu um skjalastjórnun.
Bennett sem hefur doktorsgráðu í
viðskiptafræði og er löggiltur skjala-
stjórnandi er prófessor í viðskipta- og
hagfræðideild ríkisháskóla Kaliforníu.
Hann hefur skrifað bækur og tíma-
ritsgreinar um skjalastjórnun, kennt á
námskeiðum og haldið fyrirlestra víða
í Bandaríkjunum og Kanada undanfar-
in ár.
í lok janúar sl. var haldin fyrsta
námstefna um skjalastjórnun hér á
landi. Þátttakendur voru stjórnendur
nokkurra stærstu fyrirtækja og stofn-
ana hér á landi ásamt forstöðumönn-
um skjalasafna. Fyrir henni stóð
Áhugahópur um skjalastjórn, með
stuðningi Menningarstofnunar
Bandaríkjanna. Áhugahópur um
skjalastjóm hefur nú starfað í tæpt ár
og hittist reglulega. í hópnum eru for-
stöðumenn skjalasafna, háskólakenn-
ari í skjalastjórn og fleiri sem um
skjalamál fjalla. Markmið hópsins er
að vinna að framgangi skjalastjómun-
ar hér á landi.
James C. Bennet prófessor.
✓
Islendingar eiga
margt ólært
Stefanía Júlíusdóttir lektor í bóka-
safns- og upplýsingafræðum og Svan-
hildur Bogadóttir borgarskjalavörður
sem eru í þessum áhugahópi segja að
hér á landi sé nú farið að huga meira
62