Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1988, Blaðsíða 58

Frjáls verslun - 01.03.1988, Blaðsíða 58
Herratískan langt síðan að þegar strákur var fermdur þá fékk hann dökk jakkaföt, hvíta skyrtu, bindi og frakka. Sem sagt hann varð að litlum herramanni frá þeim degi og síðan gekk hann í dökkum jakkafötum, hvítri skyrtu og með bindi ef hann ætlaði að vera fínn. Þetta breyttist og strákar urðu strákar aftur en það nýjasta er að litli herramaðurinn er að koma aftur. Ungir strákar í dag vilja fín föt — vandaðan fatnað og þeir vilja ekki sjá þessar druslur sem áður voru í tísku og nú í ár kaupa stúdentarnir smók- ing. Ég hef ekki haft undan að selja smókinga undanfarna daga.“ Hvað finnst þér einkenna herra- tískuna í dag? „Fyrir utan hvað föt eru vönduð þá finnst mér létt og frjálsleg snið vera einkennandi. Auðvitað er misjafnt hvað menn þurfa og menn í toppstöðu klæðast jakkafötum. Því hærra sem þeir eru settir — ef þeir eru í miklum ábyrgðarstöðum þá finnst mér að þeir eigi að vera í hlutlausum, vönduðum en glæsilegum jakkafötum og í hvítri skyrtu. Þeir eiga ekki að vera áber- andi klæddir. Margir karlmenn í þjóð- félaginu eru líka það sterkir „karakt- erar“ að þeir þurfa ekki áberandi föt til að láta bera á sér. Sumir vilja það heldur alls ekki og vilja falla inn í fjöld- ann en það gera þeir með því að klæð- ast hlutlausum fötum. Annars kaupa menn mikið staka jakka og buxur, skyrturnar eru rönd- óttar og bindin í ýmsum litum. Litrík og falleg bindi hafa mikið að segja. Samsetning eins og þessi er að mínu mati frískleg og glæsileg en um leið er létt yfirbragð yfir henni. Þeir vildu fá alþjóðlegt yfirbragð sem er ríkjandi erlendis Það sem mér fmnst hafa breyst mikið er að nú sést ekki svo mikill munur á mönnum þrátt fyrir aldurs- mun. Fertugur maður og rúmlega tvítugur klæðast svipuðum fatnaði — sá eldri reynir að yngja sig en sá yngri reynir að sýnast virðulegri og það er á kostnað klæðaburðarins. Þó einkenn- ir frjálsleiki yfirbragð þeirra beggja. Yngri menn leggja mun meira upp úr fatnaði en áður var. Þeir vilja vera vel klæddir og kaupa því vönduð föt sem endast vel.“ Hverjir versla hjá þér? „Hingað koma menn á öllum aldri, úr öllum þjóðfélagshópum og hingað koma konur í stórum stíl. Það virðist sem ákveðinn skortur ríki í fatnaði fyrir konur. Ef kona vill klæðast vand- aðri flík án þess að það komi niður á hönnuninni þá lendir hún í vandræð- um. Konur kaupa mikið hjá mér jakka og frakka og ég er mjög ánægður með það.“ Eru konurnar enn með í för þegar karlmaðurinn kaupir sér föt? „Já, um helmingur karlmanna taka konurnar með þegar þeir eru að kaupa sér föt. Mér finnst þetta ósköp svipað og hefur alltaf verið. Konur hafa mikið að segja þegar þeir eru að velja föt. Við verslunarmenn höfum einnig mikið að segja og hlutverk okk- ar hefur breyst mikið á þessum tíma. Við höfum breyst úr sölumönnum í leiðbeinendur. Það er staðreynd að ef þú vilt vera vel klæddur þá fer heil- mikill tími í að velja hvað á vel saman, hvað klæðir viðkomandi og hvað hann þarf. Við sem vinnum við föt erum auðvitað betur þjálfaðir en aðrir í þessu sem kemur sér því vel fyrir viðskiptavininn, sparar honum tíma og fyrirhöfn." Hvers vegna leggja menn' svona mikið upp úr því að vera vel til fara dags daglega? „Það er margt sem kemur þar til. í flestum tilfellum eru menn að kaupa sér vinnufatnað og það er ekki svo lítið atriði fyrir menn að vera vel til fara. Maður treystir betur vel klædd- um manni en illa klæddum. Sá vel klæddi íjárfestir í sjálfum sér með góðum og vönduðum fötum og um leið verður sjálfstraustið meira hjá ílestum ef þeir eru vel klæddir." Hvað verður í tísku fyrir karlmenn- ina í sumar og haust? „Mér finnst jarðlitir einkenna bæði sumar- og haustvörurnar. I haust verða fötin dekkri og fara út í grátt og svart en eru lífguð upp með ljósum og fallegum skyrtum og mikið verður lagt upp úr fallegum og litríkum bind- um,“ sagði Gaðar í Herragarðinum að lokum. r Áskriftarsími 82300 v 58
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.