Frjáls verslun - 01.03.1988, Blaðsíða 34
NÚ
getum við boðið hinar þekktu
l’—miBRE—] vélar með sérlega
( DIESEL POWER j
góðum greiðsluskilmálum.
SABRE díselvélarnar eru háþróuð ensk gæðaframleiðsla. Þær eru hljóðlátar,
þýðgengar og sparneytnar og eru framleiddar í stærðum 80 til 345 hö.
SABRE verksmiðjan hefur það fram yfir flesta aðra framleiðendur, að bjóða vélar
í tveimur gæðaflokkum. Annarsvegar vélar, sem merktar eru „L“ og ætlaðar eru
fyrir léttari notkun. Þær eru framleiddar undir sama gæðastaðli og flestar aðrar
bátavélar. Hinsvegar framleiðirSABREverksmiðjan aðra gerð af vélum, sem
merkt er „C“. Þær hafa lægri uppgefna hestafla tölu og eru sérhannaðar fyrir
mikið álag og erfiða notkun í vinnu- og fiskibátum. Það eru vélar,
sem þið getið treyst.
Eftirtaldir fiskibátar eru m.a. búnir SABRE dísilvélum:
Anna Halldórs AK, Leiftur SK, Drífa NK, Kristján EA, Hjördís NS, Fönix ÍS,
Vigdís EA, Matthildur EA.
Nú getum við boðið þessar vönduðu vélar á hagstæðu verði og mjög góðum
greiðslukjörum. Leitið nánari upplýsinga.
BALDUR HALLDÓRSSON skipasmiður \ \ z_
Hlíðarenda - Pósthólf 451 - 602 Akureyri - Sími 96 23700
34