Frjáls verslun - 01.03.1988, Blaðsíða 17
með góðar minn-
rá Landsbankanum
'a Pálsson bankastjóra Verzlunarbankans
Þegar mér bauðst staða bankastjóra
Verzlunarbankans ákvað ég að slá til
og leggja út á nýjar brautir." Tryggvi
segir tímann í Landsbankanum hafa
verið góðan og þar gafst honum tæki-
færi til að vinna að spennandi verk-
efnum. En hann segist frekar vilja
horfa fram á við en einblína á það sem
liðið er. Reyndar segist hann alls ekki
vera bitur vegna Landsbankamálsins.
„Ég fer með góðar minningar frá
Landsbankanum,“ segir Tryggvi.
Bankaráð Verzlunarbankans
er fljótt að taka ákvarðanir
enda tók ráðning mín ekki
nema örfáa daga. Það var haft sam-
band við mig og ég spurður að því
hvort ég hefði áhuga á að gegna stöðu
bankastjóra Verzlunarbankans,
ásamt Höskuldi Ólafssyni og Kristjáni
Oddssyni. Ég bað um nokkurra daga
umhugsunarfrest og þegar mér þótti
sýnt að viðhorf stjórnenda bankans
væru mér jákvæð þekktist ég boðið.
Það var að kvöldi fimmtudagsins 4.
febrúar síðastliðinn sem ég þáði boðið
og bankaráð Verzlunarbankans gekk
frá ráðningu minni á fundi daginn eftir.
Sama morgun og gengið var frá ráðn-
ingunni sagði ég upp stöðu minni við
Landsbankann.
Mér finnst eðlilegt og í raun æski-
legt að menn í stjórnunarstöðum láti
sem fyrst af störfum eftir að þeir hafa
sagt upp og óskaði ég þess. En
bankastjórar Landsbankans báðu mig
að gegna starfinu áfram þar til búið
væri að ganga frá ársreikningi bank-
ans en það starf er í verkahring fjár-
málasviðs. Mér fannst vænt um að
vita af þessu trausti sem þeir báru til
mín. Ég var því í Landsbankanum til
3. mars og hóf störf við Verzlunar-
bankann 9. mars.“
Er um mjög ólíka banka að ræða?
Já, bankarnir eru ólíkir. Verzl-
unarbankinn er mun minni og
þjónar fyrst og fremst höfuð-
borgarsvæðinu, Mosfellsbæ og
Keflavík. En stærðin segir ekki allt í
rekstri banka, frekar en í almennum
rekstri fyrirtækja. Verzlunarbankinn
er einkabanki og í því felst meiri mun-
ur en ég hafði áður gert mér grein
fyrir. Ákvarðanatakan er mun
sneggri eins og ég minntist á og arð-
semismarkmiðið er sett mun ofar.
E inkabankarnir
eru sneggri ab
taka ákvarbanir
Arðsemismarkmiðið hefur sín áhrif á
val og hvatningu allra starfsmanna. Ef
einhver þykir ekki starfí sínu vaxinn
er tekið á því máli. Á sama hátt er
reynt að umbuna fyrir vel unnin störf.
Gott starfsfólk er forsendan fyrir ár-
angri en einnig þarf að byggja á mark-
vissri stefnu. Um Verzlunarbankann
blása ferskir vindar og það eru bjartir
dagar framundan." Tryggvi Pálsson
fæddist árið 1949 í Reykjavík og var
alinn upp í Vesturbænum. Gekk í
Melaskólann til tíu ára aldurs. En leið-
ir hans áttu eftir að liggja víða. Þegar
Tryggvi var tíu ára gamall flutti hann
ásamt fjölskyldu sinni til Danmerkur
þar sem faðir hans, Páll Ásgeir
Tryggvason, tók við embætti sendi-
ráðsritara. í Kaupmannahöfn bjó
Tryggvi í þrjú ár og sótti þar skóla.
Tryggvi segir það mikið stökk fyrir
tíu ára gamlan dreng að flytjast búferl-
um milli landa. „Það voru mikil um-
skipti að flytja út og viðbrigðin voru
ekki minni þegar ég flutti til íslands
aftur. Þegar við fluttum út skákuðum
við bræðurnir lengi í því skjólinu að
við kynnum ekki dönsku en vorum
farnir að skilja dönsku löngu áður en
við viðurkenndum það. Satt best að
segja vorum við ekki allt of duglegir í
dönskum skólum. Við sátum í
Skovgaardsskolen sem var mikill
framúrstefnuskóli og á vissan hátt til-
raunaskóli hjá Dönum. Þama var mik-
ið álag á nemendum og góð kennsla.
Það var lögð mikil áhersla á verklega
kennslu og lagt kapp á að tengja nám-
ið við umhverfið. Sem dæmi má nefna
að tólf ára voru við komin með verk-
lega eðlisfræði, verklega efnafræði,
farin að læra ensku og þýsku og farin
að stúdera byggingarlist, — teiknuð-
um hús í gotneskum og rómverskum
stíl.
Eftir þriggja ára dvöl í Dan-
mörku fóru foreldrar mínir
til eins árs dvalar í Svíþjóð
og þá þótti skynsamlegast að senda
mig heim í annan bekk í gagnfræða-
skóla til að búa mig sem best undir
„hryllinginn" sem landsprófið var á
17