Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1988, Blaðsíða 47

Frjáls verslun - 01.03.1988, Blaðsíða 47
Ólafur B. Thors: Sameining er æskileg ÓlafurB. Thors. Þegar Ólafur B. Thors, for- stjóri Almennra Trygginga, var spurður hvort slæm rekstraraf- koma vátryggingafélaganna, há iðgjöld og skortur á samkeppni kallaði ekki á sameiningu félag- anna sagðist hann vel geta fall- ist á að félögin væru of mörg. Það væri hinsvegar mikill mis- skilningur að ekki ríkti sam- keppni á milli tryggingafélag- anna. „Staðreyndin er sú að í iðgjöldum ríkja alltaf bestu fáanleg kjör á hverjum tíma. Ef eitthvert félaganna lækkar iðgjöld eða hækkar bónus, svo dæmi séu nefnd, þá fylgja hin alltaf fast á eftir vegna sam- keppninnar. Það er næstum sama hversu heimskulegar ákvarðanir eru teknar, hin félögin verða að fylgja á eftir. Menn verða lítið varir við þessa samkeppni vegna þess að hún lækkar alla heildina. Væri hún hins- vegar ekki fyrir hendi og ef hér væri t.d. aðeins eitt ríkisrekið tryggingafyrirtæki, er ég hræddur um að menn yrðu tilfinnan- lega varir við skort á samkeppni." — Hvaða hagræðing væri fólgin í sam- einingu tryggingafélaga? „Samkvæmt lögmálinu um að færri rekstrareiningar og stærri séu betri en smáar þá er sameining ugglaust af hinu góða. Það er lögmál sem gildir í öllum rekstri. En það má ekki ganga of langt. Eitt væri hrikalegt en tvö ekki nóg. Mesta hagkvæmnin væri vafalaust í lækkun reksturskostnaðar sem e.t.v. skiptir ekki miklu máli hvað ökutækjatryggingar varð- ar vegna þess að svo oft kemur ekki króna upp í reksturskostnaðinn heldur er hann borinn uppi af fjármunatekjum fyrirtækis- ins.“ — Hefur verið rætt um sameiningu tryggingafélaganna? Ef svo er hvemig er líklegt að slík sameining færi fram? „Það væri eðlilegt að viðkomandi aðilar kynntu sér hvaða arðsemi mætti vænta af þessum félögum. Komist menn að þeirri niðurstöðu að ijármunum þeirra sé betur borgið með hlutdeild í stærri rekstrarein- ingu þá er sameining eðlileg breyting. Sameinig getur hinsvegar aldrei gerst samkvæmt yfirvaldsboði. Mér vitanlega em engar viðræður í gangi. Það segir þó ekkert um að menn geti ekki velt fyrir sér stöðunni. Það er alveg ljóst að síðastliðið ár hefur orðið mörgum tryggingafélögum erfitt." — En eru iðgjöldin ekki of há? „Ef við tökum ökutækjaiðgjöldin sem dæmi þá er ljóst að þessi iðgjöld sem ákveðin voru nú í vor munu ekki nægja til að koma þessari tryggingagrein á réttan kjöl nema menn taki upp nýja og betri siði í umferðinni. Fólk verður að gera sér grein fyrir því að það er dýr lúxus að haga sér eins og raun ber vitnj. Það er trygginga- félögunum ekki kappsmál að iðgjöld séu of há. Þvert á móti. Tryggingaeftirlitið hefur mjög strangt eftirlit með ákvörðun ið- gjalda. Það gerist oftar en ekki að Trygg- ingaeftirlitið sker miskunnarlaust niður ið- gjaldaákvarðanir félaganna. Það er m.a. ein orsök þess að svona stórar iðgjalda- sveiflur eiga sér stað. Við skulum aðeins staldra við og athuga hvað það er sem ræður útkomunni hjá vátryggingafélögun- um. Það er í fyrsta lagi hlutfallið á milli iðgjalda og tjóna. Ég geri ráð fyrir að hjá flestum eða öllum félögunum sé þetta hlutfall öfugtþ.e.a.s. að tjónakostnaður sé hærri en iðgjöld. í öðru lagi hvemig félögin ávaxta sjóði sína. Þegar ástandið er eins og núna geri ég ráð fyrir að þetta atriði sé það sem máli skiptir fyrir rekstur félagsins. Þau félög sem eiga stærstu sjóðina og hafa mestar ávöxtunartekjur koma best út. í þriðja lagi skiptir rekstrarkostnaður félaganna miklu máli. Það kemur í ljós ef sá kostnaður er borinn saman við samsvarandi tölur frá erlendum fyrirtækjum að við rekum félög- in með mun minni kostnaði en gerist víða erlendis. Það er því ekki hægt að benda á að kostnaður félaganna sé óeðlilega mikill. Hitt er svo annað mál að eflaust má draga úr kostnaði með stærri rekstrareiningum. Félögin geta líka þurft að vera nægilega hörð í að innheimta dráttarvexti og láta peningana vinna fyrir sig. Hinsvegar sýnir reynslan að það gengur ekki til lengri tíma að jafna misvægið milli tjóna og iðgjalda með fjármunatekjum. En ef ekkert af þessu dugar til — mismunur milli iðgjalda og tjóna, fjámunatekjur og spamaður í rekstri, þá verða fyrirtækin að sækja á önnur mið eftir viðbótarfé — t.d. í formi hlutafjáraukningar. “ — Telur þú æskilegt að félögin samein- ist að einhverju leyti? ,Já, ég tel æskilegt að sjá í framtíðinni einhverja sameiningu hér á markaðnum. Ég tel eðlilegt að rekstrareiningar séu færri, stærri og sterkari. En það verður að tryggja eðlilega samkeppni sem kemur fram í aukinni þjónustu. Við lifum í vaxandi samkeppnisþjóðfélagi og sú samkeppni kemur fram hjá tryggingafélögunum þó svo að menn verði ekki alltaf varir við hana og þessvegna fullyrði ég að það em alltaf bestu fáanleg kjör sem gilda hverju sinni.“ 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.