Frjáls verslun - 01.03.1988, Síða 11
Fréttir
Árni Vilhjálmsson.
Stefán Svavarsson.
Hvernig á að
lesa ársreikn-
inga fyrirtækja?
Frjálst framtak hf. hefur
gefið út bókina „Hvernig
lesa á ársreikninga fyrir-
tækja“ í samvinnu við
Hlutabréfamarkaðinn hf.
Höfundar eru þeir Árni Vil-
hjálmsson prófessor og
Stefán Svavarsson lektor
og löggiltur endurskoð-
andi.
Á bókarkápu segir að í
ársreikningum fyrirtækis
sé að finna fróðleik um af-
komu þess og fjárhagslega
stöðu. Við gerð ársreikn-
ings er stuðst við sérstakar
reglur. Sumar þeirra eru
studdar langri hefð en jafn-
framt er um að ræða reglur
sem ætlað er að svara
áhrifum þrálátrar verð-
bólgu hér á landi og hafa
þær haft veruleg áhrif á
efni ársreikninga. Hætt er
við að sá, sem er ókunnug-
ur þessum reglum, geti
misskilið boðskapinn sem
ársreikningurinn flytur
t.d. um hagnað fyrirtækis-
ins. Þessu riti er ætlað að
fræða lesandann um þau
sjónarmið og þær reglur
sem beitt er við gerð árs-
reiknings og þar með að
auðvelda honum að hafa
fullt gagn af þeim ársreikn-
ingum sem koma honum
fyrir sjónir.
Hundrað stærstu
Vinnsla á listanum yfir
100 stærstu fyrirtækin á
íslandi 1987 er hafin.
Færst hefur í vöxt að fyrir-
tæki sendi inn ársreikn-
inga sína strax og þeir
liggja fyrir til umsjónar-
manna listans. Flýtir það
mjög fyrir vinnslu listans.
Einnig er það mjög algengt
að fyrirtæki veiti upplýs-
ingar um hagnað og eigin-
fjárstöðu. Stefnt er að því
að hafa upplýsingar um
einstaka rekstrarþætti
fyrirtækja verði fyllri en
verið hefur.
Verður misvægi
atkvæða kært
til mannrétt-
indadómstóls
Evrópu?
Hópur manna í Kópavogi hefur nú um nokkurt skeið unnið að undirbúningi þess að senda kæru til Mann- réttindadómstóls Evrópu vegna þess að atkvæði hér á landi í þingkosningum vega misþungt eftir bú- setu. Hugmyndin kom upp innan eins flokksfélags en málið mun þó ekki vera flokkspólitískt því menn úr flestum flokkum hafa vilj- að ljá því stuðning. Ekki er ljóst hvenær látið verður til skarar skríða en þess má vænta að síðla sumars eða í haust verði málið gert opinbert og þá verður ekki langt að bíða að formleg kæra líti dagsins ljós.
Misjafn kostnaður af viðskiptavíxlum
Það getur skipt miklu máli hvar viðskiptavíxlar eru seldir. Heildarkostnað- ur vegna 50 þúsunda króna víxils í þrjá mánuði er 6.244 krónur hjá einum banka en á sama tíma 4.800 krónur hjá öðrum. Munurinn er 1.444 krónur eða 2.89% af upphaflegri fjárhæð. Þessar upplýsing- ar koma fram í nýlegu fréttabréfi Verslunarráðs íslands. Þar er einnig birt meðfylgjandi tafla yfir ársávöxtun á viðskipta- víxlum hjá einstökum bönkum og sparisjóðum.
Ársávöxtun 50 þús kr. víxils
Um er að ræða viðskiptavíxil í einn, tvo eða þrjá mánuði. Auk
vaxta er allur annar kostnaður innifalinn, svo sem þóknun,
stimpilgjald og útlagður kostnaður.
Banki:
Alþýðuþankinn
Búnaðarbankinn
Iðnaðarbankinn
Landsbankinn
Samvinnubankinn
SPRON
Útvegsbankinn
Verzlunarbankinn
30 dag. 60 dag. 90 dag.
68,27% 62,12% 60,12%
61,02% 48,36% 44,37%
70,10% 54,31% 49,37%
59,50% 54,03% 52,25%
56,60% 47,27% 44,29%
63,01% 57,18% 55,36%
61,48% 54,67% 52,47%
66,09% 60,06% 58,10%
11