Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1988, Síða 15

Frjáls verslun - 01.03.1988, Síða 15
Skýringu á illindum út í innflutning á þessari vörutegund má líklega finna í fljótfærnislegri undanlátssemi við hagsmunaaðila í kartöfluframleiðslu. felld hækkun á vöruverði til neytenda er ekki viðurkennd vegna umhyggju fyrir störfum örfárra aðila í fram- leiðslu á frönskum kartöflum. Sú krafa er ríkjandi að fólk starfi við arð- bæra iðju, en ekki við atvinnubóta- vinnu sem greidd er með matarpen- ingum almennings. Stundarhagsmunir Skýring á illindunum út í innflutning á þessari vörutegund má líklega finna í fljótfærningslegri undanlátssemi við hagsmunaaðila í kartöfluframleiðslu. Tvær kartöfluverksmiðjur eru starf- andi, á Norðurlandi og Suðurlandi. Líklega er einnig vonast til að stór hækkun á „frönskum" verði til að landsmenn láti frekar ofaní sig „venju- legar“ og kartöflubirgðirnar minnki örlítið. Þessi meðmæli með aðgerðum ráðherra þarf hins vegar að taka með varúð. Vafasamt er að með þessum aðgerðum sé verið að auka störf á landsbyggðinni. Atvinnulíf þar er að taka breytingum, t.d. verður veit- inga- og gistihúsarekstur með ári hverju mikilvægari iðja um allt land. Hátt vöruverð hérlendis er hinsvegar farið að fæla burt erlenda ferðamenn. Sú vörutegund sem hér um ræðir er hluti af aðföngum veitingahúsa. Að sögn forsvarsmanna Sambands veit- inga- og gistihúsaeigenda er stórfelld hækkun á frönskum kartöflum einn liður í að hækka verð á t.d. lamba- kjötsréttum sem boðnir eru erlend- um ferðamönnum. Fækkun erlendra ferðamanna þýðir auðvitað strax fækkun fólks í ferðaþjónustu á lands- byggðinni. Félagshyggja? Athyglisvert er að velta fyrir sér hvort stöðvun á innflutningi af þessu tagi flokkist undir félagshyggju? Á undanförnum árum hefur orðið sú til- hneiging að vinstri sinnað fólk úr ýms- um áttum fylki sér saman undir for- merkjum félagshyggju. Sú hyggja vill sporna við ofurvaldi markaðarins í efnahagslífinu. Er stöðvun á innflutn- ingi á frönskum kartöflum félags- hyggjumál? Er hér um að ræða nauð- synlega takmörkun á markaðsstarf- semi sem gagnast mun íslensku þjóðinni þegar til lengri tíma er litið? Ágreiningsefni félags- og markaðs- hyggju verða ekki rædd hér. Hins- vegar má benda á að þó ýmsir geti fundið hugmyndinni um alfijálsan markað ýmislegt til foráttu er ís- lenska þjóðfélagið markaðsþjóðfélag með t.d. miklum einkarekstri í at- vinnulífinu. Innan þessa ramma starf- ar félagshyggjufólk hér á landi hvort sem því líkar betur eða verr. Nú er það svo að oft er vikið frá ströngustu markaðshugmyndum í ís- lensku atvinnulífi. Gott dæmi um þetta úr mikilvægum atvinnurekstri er að lögum samkvæmt er bannað að flytja út saltfisk nema í gegnum Sölu- samband íslenskra fiskframleiðenda. Hveijum og einum framleiðenda er ekki frjálst að selja vöru sína beint til viðskiptaaðila líkt og á frjálsum mark- aði. S.Í.F. hefur hins vegar lagt fram mörg sterk rök fyrir nauðsyn þessa sölufyrirkomulags. Þar á meðal ein- okunartilhneigingar meðal kaupenda í markaðslöndum (en slíku er erfitt að svara nema með samstöðu hér á landi), áratuga markaðsstarfi í Miðj- arðarhafslöndum þar sem áhersla hefur verið lögð á langtímasjónarmið og stöðuga sölumöguleika, frekar en að selja í skamman tíma fyrir hátt verð, o.fl. Rök af þessu tagi fyrirfinnast hvergi í kartöflumáli Jóns Helgason- ar. Þar er ekki um að ræða grimma alþjóðlega samkeppni í sölu á mikil- vægri útflutningsafurð. Aðgerðirnar eru ekki hluti af vel rökstuddri stefnu af neinu tagi og erfitt er að koma auga á félagshyggjusjónarmið í þessu brölti. Ef þau eru til staðar er þar um að ræða félagshyggju sem er ærið fjandsamleg hinum almenna borgara, neytandanum, sem félagshyggjan á þó að þjóna. Niðurlag Þetta sérkennilega kartöflumál er því dæmi um opinbera ákvarðanatöku sem ekki er til fyrirmyndar. Karp um hvort franskar kartöflur eru iðnaðar- vara eða landbúnaðarvara, deilur milli ráðuneyta, innflutningsbann, snöggar og miklar hækkanir á aðflutnings- gjöldum, er röð atburða sem lýsir ekki vönduðum efnahagsákvörðun- um. Um það getur bæði félags- og markaðshyggjufólk verið sammála. 15

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.