Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1988, Blaðsíða 22

Frjáls verslun - 01.03.1988, Blaðsíða 22
Samtiðarmaður sig sem menn í atvinnurekstri án þess að vera að hólfa sig niður í ákveðna atvinnugrein og berjast innbyrðis. Verðtrygging útlána var tekin upp ár- ið 1979 og í nokkrum áföngum er los- að um höftin á fjármagnsmarkaðinum. Sem dæmi má nefna að árið 1983 var öllum bönkum gefið leyfi til gjaldeyr- isviðskipta og takmarkað vaxtafrelsi var veitt árið 1984. Afurðalánakerfíð breyttist í grunnvallaratriðum í októ- ber 1984 þegar bankarnir tóku að sér að útvega lán erlendis frá út á útflutn- ingsframleiðslu í stað þess að fé feng- ist sjálfvirkt frá Seðlabankanum. Um vorið 1985 yfirtóku síðan bankarnir lán út á afurðir fyrir innlendan mark- að. Það má nefna fleiri kerfisbreyting- ar svo sem heimildir einstaklinga til að stofna gjaldeyrisreikninga, breytta viðskiptahætti Seðlabankans við inn- lánsstofnanir og tilkomu millibanka- markaðar með lánveitingum milli banka sem stuðla að jafnari lausafjár- stöðu bankanna. Vaxtafrelsið og breyttir stjórnunarhættir banka voru síðan staðfestir með nýjum lögum um viðskiptabanka, nýjum lögum um Menn eru hættir að halda upp á lántökur með kavíar og kampavíni Seðlabanka og sérstökum vaxtalög- um.“ Þú talar um öra þróun í bankamál- um á síðustu árum, meira frelsi og breytt viðhorf til fésýslu. Á sama tíma hafa sprottið upp verðbréfasjóðir sem sífellt eignast stærri hluta peninga- markaðarins. Eru bankarnir ennþá nokkrum skrefum á eftir í þróuninni? Eru þeir of svifaseinir? róunin hefur bæði verið mikil og ör. Lánsfjármiðlun pen- ingastofnana hefur að sama skapi aukist. Það er meira um fé á markaðinum en áður var en það er dýrara, eða eins og Pétur Blöndal komst réttilega að orði í útvarpserindi fyrir skömmu: „Menn eru hættir að halda upp á lántökur með kampavíni og kavíar." Hvað með samkeppnina um inn- lánsfé? Eiga bankarnir ekki undir högg að sækja fyrst verðbréfamark- aðurinn býður hærri ávöxtun en bankarnir? „Það er alveg rétt en mikill hluti innlánsfjárins hafa bankarnir til mjög skamms tíma. Þar á ég meðal annars við peninga á tékkareikningum sem fólk notar yfirleitt innan skamms tíma og þess vegna geta bankarnir ekki bundið það fé á sama hátt og það sem samið er um til lengri tíma. Þess vegna er ekkert óeðlilegt að hafa mun á vaxtaprósentu eftir binditíma fjár- ins. í bankainnistæðunum felast að auki ákveðnar tryggingar, bæði í gegnum stöðu bankanna og trygg- ingasjóð viðskiptabankanna sem tók til starfa í janúar 1986 þegar nýju bankalögin tóku gildi. Þetta tryggir að viðskiptavinir bankanna geta alltaf fengið fé sitt greitt til baka á umsömd- um tíma. Verðbréfaviðskipti eru ann- ars eðlis. Þar er um að ræða umsamin geymslutíma fjár en kaupandi verð- bréfsins þarf í hvert og eitt skipti að athuga tryggingarnar sem standa að baki pappírsins. Þeir sem kaupa bréf af verðbréfasjóðum eru sjálfir búnir að taka að sér hlutverk banka. Þar er keyptur hluti í útlánasamsetningu verðbréfasjóðsins með þeirri inn- byggðu áhættu sem fylgir útlánasam- setningunni og það eru aðrir sem ákvarða hvernig samsetningin er. Ávöxtunin er yfirleitt góð en menn verða að huga að því hvað innlausnin kostar og hvenær hægt er að innleysa féð. Svo má ekki heldur gleyma giæiðslumiðlun bankanna. Þar er urn að ræða mikilvægt starf sem eðlilegt er að greitt sé fyrir. Það má ekki nota vaxtamun inn- og útlána til að greiða niður þessa þjón- ustu eins og tíðkaðist fyrir breyting- arnar á fjármagnsmarkaðinum. Þá voru allir vextir ákveðnir af Seðla- banka íslands. Ekki bara vaxtapró- sentan heldur nákvæmlega hvernig út- og innlánsform bönkunum var Tryggvi Pálsson stjórnarmaður í Kreditkortum hf. ásamt Gunnari Erni Bæringssyni framkvæmdastjóra Kreditkorta hf. 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.