Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1988, Side 26

Frjáls verslun - 01.03.1988, Side 26
mmmmmmmmmmt Athafnamenn svo verslunina Vogaver í janúar 1985 og nú síðast var verslunin Kópavogur keypt 1. febrúar s.l. af Útvegsbanka íslands hf. Nóatún var lengst af rekið sem sameignarfélag en því var breytt í hlutafélag í ágúst á síðasta ári. Nóa- tún hf. rekur nú fjórar verslanir og Ijöldinn á launaskrá er um 110-120 manns. Mánaðarleg velta samanlagt í þessum fjórum verslunum er um 65 milljónir króna. En má búast við því að Nóatúns- verslanir skjóti upp kollinum víðar á höfuðborgarsvæðinu? Jón I. Júlíusson útilokar ekkert í því sambandi. „Við höfum þessar fjórar verslanir og við munum reka þær áfram. Frekari stækkun ræðst af aðstæðum hverju sinni,“ segir hann og bætir við. „Við ætlum okkur að auka umsvifin á því er engin launung." Jón hefur lagt ýmislegt annað fyrir sig en kaupmennsku. Hann var sjó- maður í 20 ár. Auk þess hefur hann sinnt ýmsum félagsstörfum sem tengjast atvinnunni. Hann hefur átt sæti í stjórn Sparisjóðs vélstjóra í 25 ár og er nú varaformaður Kaup- mannasamtaka íslands og formaður Félags kjötverslana. Jón var spurður að því hver væri munurinn á því að vera kaupmaður nú og fyrir 30 árum. „Breytingarnar hafa verið geysilega miklar," segir hann. „Verslanirnar voru minni og þjónust- an við viðskiptavininn var persónu- legri. Kaupmaðurinn þekkti við- skiptavininn og honum var meira sinnt. Þá tíðkaðist að senda vöruna heim. Menn gátu jafnvel hringt og pantað og fengið sent heim. Þá var líka meira um að skrifað væri hjá fólki en það er að hverfa nú eftir að plast- kortin komu.“ Jón er ekki ýkja hrifinn af kortunum og getur ekki látið hjá líða að benda á þá ósvinnu að kaupmenn þurfi að borga fyrir að lána peninga. Hann er vanur því að þeir sem lána peninga fái vexti. „Kortin hækka vöruverðið og þær verslanir sem taka ekki kort geta verið með lægra vöruverð," segir hann. „Og ekki bætir úr skák að kortafyrirtækin hagnast á því að sölu- skattur var lagður á matvæli um síð- ustu áramót því þau fá sínar prósent- ur af skattinum einnig." Styrk eiginfjárstaða — Hvers vegna hafa litlu verslan- irnar látið undan síga? „Þetta er almenn þróun. Þar fyrir utan er skýringin sú að minni verslan- ir standa og falla með kaupmanninum. Þegar kaupmaðurinn fellur frá eða hættir er oft enginn til að taka við. Annað hvort leggst verslunin niður eða einhverjir nýir aðilar byrja sem telja að verslunarrekstur sé auðveld leið til að afla peninga. Þeir komast fljótt að öðru. Kaupmenn þurfa að leggja sig alla fram og verslanir hjá kaupmanninum á horninu lifa á pers- ónulegum samskiptum kaupmannsins og fólksins í hverfinu,“ segir Jón. „Þótt sumir telji tilkomu stór- markaðanna til framþróunar hefur sú þróun ýmsar hliðar," heldur Jón áfram. „Þegar litlu verslanirnar í hverfinu týna tölunni missir fólkið þá þjónustu sem það hafði áður. Það á því erfiðara með að ná í nauðsynjar, sérstaklega eldra fólk sem sumt hvert er upp á náð og miskunn að- standenda komið um aðföng. Nokkrir bæjarhlutar eru nú sérlega illa settir." — En hverju þakkar þú velgengni Nóatúns? Jón er ekki seinn að svara þessari spurningu og svarið er stutt og ákveðið: „Styrkri og góðri eiginfjár- stöðu,“ segir hann. „í dag verslar enginn með matvöru nema hann hafi 60% af fjármagninu sem eigin fé.“ Hann bætti því einnig við að fyrirtæk- ið hefði vaxið og dafnað vegna sam- heldni fjölskyldunnar. Reyndar eru það tengdasonur Jóns og dóttir sem eiga og reka Vogaver þótt það sé hluti af Nóatúni hf. Jón sagði að meðalálagning í mat- vöruversluninni væri 16-21% og kaupmenn teldu að hún þyrfti að vera hærri. Þrátt fyrir að eðlilegt væri að álagning á hverri vörutegund stæði undir dreifmgarkostnaði væru kaup- menn hálfpartinn neyddir til þess að dreifa landbúnaðarvörum langt undir kostnaði við dreifinguna eða allt niður í 10%. „Matvörukaupmenn hafa eng- ar tuskur frá Taiwan eða Hong Kong með 100-200% álagningu til þess að greiða dreifingarkostnað á landbún- aðarvörunum niður eins og sumir stórmarkaðimir. Við erum heldur 26

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.