Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1988, Page 28

Frjáls verslun - 01.03.1988, Page 28
Sjávarútvegur Hver verða áhrif heima- markaðar EB á ísland og íslenskan sjávarútveg? Helmingur utanríkisviðskipta íslendinga er við Evrópubandalagið. Engum dylst að veruleg umskipti hafa orðið á síðustu árum í viðskiptaumhverfi Is- lendinga í kjölfar aukinna samgangna við umheiminn, örrar tækniþróunar og breyt- inga á viðskiptaháttum innan okkar helstu útflutnings- markaða. Allt þetta kallar á að við fylgjumst vel með þessum hræringum því ella er veruleg hætta á að tæki- færi glatist, sem hefðu getað orðið þjóðarbúinu til hags- bóta. Um það bil helmingur utannkisvið- skipta íslendinga er við Evrópubandalagið eftir að það stækkaði verulega árið 1986. En þessi viðskiptarisi Evrópu og að sumra mati samnefnari Evrópuþjóða innan fárra ára, hefur ekki aðeins vaxið að afli heldur hefur einnig orðið þar eðlisbreyting. Stefna bandalagsins er að landamæri að- ildamkjanna verði afnumin í þeim skilningi orðsins að allar hindranir á flutningi fólks, vöru og fjármagns verði lagðar niður á tfmabilinu fram til ársins 1992. Fyrirtækja- lög verða senn samræmd í öllum aðildar- nkjunum, skattheimta af atvinnurekstri samræmd og tryggt frjálst flæði í banka-, trygginga- og flutningastarfsemi. Hér er um allt annað EB að ræða en var fyrir 15 árum en þrátt fyrir það hefur til- tölulega lítil umræða farið fram um við- skiptasamninga íslendinga við þessar þjóðir frá því við gerðum fri'verslunar- samning við EFTA árið 1970 og aðra samninga við þáverandi EB árið 1972. Áður en við höldum lengra er ekki úr vegi að rifja ofurlítið upp þróun mála og minna á þau helstu viðskiptatengsl sem við höfum bundið við aðrar þjóðir, einkan- lega í Evrópu á síðustu áratugum. Samningar við EFTA og EB Það var í kjölfar seinni heimstyrjaldar- innar sem Evrópuþjóðir hófu að efla sam- skipti sín á menningar- og viðskiptasvið- inu. Efnahagssamvinnustofnunin var stofnuð árið 1948 og tæpum áratug síðar var undirritaður á Italíu svokallaður Róm- arsamningur, en hann markaði um leið upphaf Evrópubandalagsins. í ársbyrjun 1960 efndu svo sjö ríki Efnahagssam- vinnustofnunarinnar til Fríverslunarsam- taka Evrópu, EFTA. Fól sá samningur í sér afnám tolla og annarra viðskiptatálm- ana í viðskiptum ríkjanna. Kom þessi samningur iðnaði einkum til góða. Islendingum var ekki boðin aðild að EFTA við stofnun samtakanna, mest vegna þess að í þann tíma var landhelgis- stríð okkar og Breta í hámarki. Strax að því loknu lýstu íslensk stjórnvöld þeim vilja sínum að heppilegt væri að ísland gerðist aðili að EFTA þar sem það styrkti stöðu landsins á viðskiptasviðinu. Hins vegar kom aldrei til greina að gerast aðili að EB, enda hefði það þýtt opnun fisk- veiðiréttinda fyrir útlendingum og frjálst flæði útlends fjármagns og vinnuafls til landsins. Af ýmsum ástæðum, sem ekki verða raktar hér í þessari upprifjun, drógust samningar við EFTA mjög á langinn en voru loks undirritaðir í byrjun árs 1969 og tóku gildi 1. mars 1970. Fríverslunar- samningurinn fól í sér að íslendingar nutu sömu tollafríðinda og beinir aðilar að sam- tökunum. Féllu þar með niður tollar á freðfiski, lýsi, mjöli og rækju. Á móti féll- umst við á að lækka vemdartolla hér á landi í áföngum á 10 árum. Jafnframt var okkur óheimilt samkvæmt samningum að beita tollum til verndar íslenskum iðnaði að aðlögunartímabilinu loknu, þ.e. eftir 1980. TEXTI: VALÞÓR HLÓDVERSSON 28

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.