Frjáls verslun - 01.03.1988, Side 40
Auglýsingar
Nýjungar í auglýsingum tímarita:
Bragð, ilmur og hljóð
Framleiðendur ilmvatna tóku
upp á því fyrir löngu síðan að
setja ilmvatnsprufur í tímarita-
auglýsingar. Um þessar mundir
er að verða sú breyting á að
tímarit lykta ekki einungis held-
ur gefa þau frá sér hljóð að auki.
Ymsir bandarískir framleiðend-
ur hafa tekið rafeindatæknina í
sína þjónustu og eru nú með
hjálp smárása (microchips) farn-
ir að láta auglýsingar í tímarit-
um leika tónlist fyrir neytendur.
Það er af sem áður var að auglýsingar í
tímaritum byggðu fyrst og fremst á fallegu
myndefni. Augiýsendur nota nú orðið alls-
konar aðferðir, allt frá þrívíddarmyndum
til smárása sem leika tónlist. Markmiðið
er auðvitað að gera auglýsingarnar sem
áhrifaríkastar.
Á Bandaríkjamarkaði hafa það verið
vínframleiðendur sem hvað mest hafa nýtt
sér hina nýju tækni til að koma á móts við
minnkandi sölu undanfarinna ára. Þeir hafa
farið ýmsar leiðir eins og að líkja eftir ilm-
vatnsframleiðendum og gefa fólki kost á
að lykta af vínum eða eins og fyrirtækið
sem framleiðir Hennessy-koníak gerði
fyrir síðustu jól, að koma fyrir koníaks-
flösku í jólasokk inni í blaðinu.
En það eru ekki einungis vínframleið-
endurnir sem beita nýrri tækni. Toyota
bílafyrirtækið auglýsit nýjustu tegundina
af Corolia með því að setja þrívíddar-
gleraugu úr pappa í auglýsingar tímarita
eins og Time, People og Cosmopolitan.
Rolls Royce kaus að gefa fólki tækifæri til
að lykta af leðurinnréttingum glæsivagns-
ins og Revlon fyrirtækið lét setja raun-
verulegar prufur af augnskuggum í sínar
auglýsingar. Fjölmörg fyrirtæki hafa síðan
notað þá aðferð að láta auglýsingar koma
fram í þrívídd m.ö.o,- þær koma út úr
blaðin þegar það er opnað.
Fyrir útgefendur tímarita skapa há-
tækniauglýsingar vissulega ákveðin
vandamál sem krefjast úrlausnar. Prent-
vélarnar taka ekki við hverju sem er og
sumar auglýsinganna eru þykkari en
venjulegur pappír og því er mikilvægt að
hönnunin sé þannig að þær þoli álagið.
Hátækniauglýsingar eru dýrar bæði
hvað varðar hönnun og framleiðslu en
fyrirtækin setja það ekki fyrir sig einkum
ef um er að ræða vaming þar sem sala er á
undanhaldi. Þau telja að þá sé nauðsynlegt
að beita óvenjulegum aðferum í þeim til-
fellum til að ná neytenda. Kannanir benda
til að þeir hafi allmikið til síns máls. Fólk
virðist taka eftir hinu óvenjulega. Þannig
byggi ákvörðun Toyota-fyrirtækisins að
eyða einni milljón bandaríkjadala í þrívídd-
argleraugu, á rannsókn sem sýndi að fólk
væri sex sinnum líklegra til að lesa auglýs-
ingu af þessari gerð. Mjög sérstæðar aug-
lýsingar leiða jafnframt til umtals sem
kemur auglýsendum til góða og þeir geta
ekki keypt að öðru jöfnu.
En ekki dugir að endurtaka það sama
aftur og aftur, þá hverfur nýjabmmið.
Auglýsendur em því sífellt í leit að ein-
hverju nýju. Hverju má búast við? Ef til vill
einhverju í líkingu við auglýsingu sem birt-
ist í frönsku tímariti sem bæði spilaði tón-
list og blikkaði ljósum. Sumir ætla að
smárásir geri það mögulegt í næstu fram-
tíð að auglýsingar í tímatritum líki eftir
auglýsingum í sjónvarpi og verði með
hljóði og hreyfingu í myndum. Þau orð em
reyndar höfð eftir forstjóra auglýsingafyr-
irtækis í New York að mörkin séu ef til vill
þar sem tvær hendur komi út úr blaðinu,
grípi um hálsinn á lesandanum og dragi
hann með sér inn í blaðið!
40