Frjáls verslun - 01.03.1988, Qupperneq 48
Bankar
Þróun banka næsta áratuginn:
Eftirlíkingar eða
þróun nýrrar þjónustu
— Sagt frá alþjóðlegri ráðstefnu í London
Greinarhöfundur,
Þórður Sverrisson er
rekstrarhagfræðingur frá
Verslunarháskólanum í
Kaupmannahöfn. Hann
starfar sem markaðsstjóri
Verslunarbanka íslands
hf
í nóvember á síðasta ári var
haldin hin árlega tveggja daga
bankaráðstefna í Lundúnum og
bar hún yfirskriftina Innovation
and Imitation: Products for the
1990s. Eins og nafnið gefur til
kynna var markmið ráðstefn-
unnar að fjalla um gildi vöruþró-
unar og nýjungar fyrir banka
næsta áratuginn. Umfjöllunin
var þó ekki bundin þeim þætti
eingöngu heldur var fjallað um
samkeppni og þróun á fjár-
magnsmarkaðnum í víðu sam-
hengi.
Yfir tuttugu fyrirlesarar frá tólf löndum
veltu fyrir sér framtíðinni og greindu frá
raunverulegum dæmum um vöruþróun og
markaðssetningu. Kom þar margt fram
sem er sérstaklega áhugavert fyrir ís-
Ienska bankamenn að skoða, en þeir hafa
starfað síðustu 3 til 4 árin á þeim markaði
hér á landi sem hvað hröðustum breyting-
um hefur tekið. Islensk fjármagnsfyrir-
tæki eiga mörg hver margt eftir ólært
bæði með tilliti til skipulags og stjórnunar,
í vöruþróun og öðrurn markaðsmálum.
Það tekur oft tíma að aðlaga skipulag og
starfsemi breyttu umhverfi og nýjum
markaðsaðstæðum ekki síst þegar breyt-
ingamar verða með þeirn hraða sem verið
hefur síðustu fjögur árin. Með þetta íhuga
er forvitnilegt að greina í stuttu máli frá því
sem fram kom á þessari ráðstefnu.
Breytt umhverfi
Þeir fyrirlesarar sem fjölluðu almennt
um framtíðarsýn á fjármagnsmarkaðnum
bentu á ýmsar breytingar sem hafa valdið
umskiptum í skipulagi, stjórnun og mark-
aðsmálum. I stómm dráttum var bent á
þrjá megináhrifavalda:
1. Aðaláhrifavaldur fyrir starfsemi fjár-
magnsfyrirtækja em breytingar á um-
hverfi í víðum skilningi. Fyrirtækin starfa
eftir breyttum reglum og kröfum, boð og
bönn eru óðum að hverfa og frjálsræði er
að aukast á markaðnum.
Peter Leslie, aðalbankastjóri Barclays
Bank, nefndi aukið frjálsræði á Qár-
magnsmarkaði sem aðalhvata vörunýj-
unga. Benti hann á tilkomu nýrra keppi-
nauta, sem ekki voru áður á markaðnum
t.d. tryggingarfélög og verðbréfasjóði,
sem leiddu til þess að bankar þyrftu að
leggja aukna áherslu á vömþróun til að
mæta aukinni samkeppni. Leslie taldi hins
vegar að draga myndi úr áhrifum þessara
nýju keppinauta þegar allir aðilar lytu
sömu Ieikregium. Leiddi þetta hugann að
íslenska fjármagnsmarkaðnum og mis-
munandi leikreglum sem þar hafa gilt.
2. Viðskiptavinirnir eru meðvitaðri um
kostnað viðskiptanna og hafa betri þekk-
ingu á markaðnum en áður var. Edward
Miller hjá Manufacturers Hanover Trust
Company taldi nýjar og auknar kröfur við-
skiptavina sterkan áhrifaþátt í aukinni
samkeppni. Benti Miller einkum á kröfur
viðskiptavina um fjármálalega ráðgjöf
varðandi flárfestingar, ávöxtunarleiðir og
skatta. Þá myndu aukast kröfur um að-
gang að þægilegum leiðum til sjálfsaf-
greiðslu t.d. í hraðbönkum og öðrum
sjálfsafgreiðsluvélum.
3. Tæknin auðveldaði að ná til við-
skiptavina á fjölbreyttari hátt en áður t.d.
með hraðbönkum og einkatölvum. Tækni-
væðingin gegndi veigamiklu hlutverki í
framþróun markaðarins. Hins vegar
stæðu fjármagnsfyrirtækin frammi fyrir
þeim vanda að nota tæknina rétt, þ.e. að
finna á hvern hátt nota megi tæknina út frá
samkeppnissjónarmiðum.
Vöruþróun
Varðandi vöruþróun og gildi hennar
kom margt forvitnilegt fram. Peter Leslie
48