Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1989, Side 5

Frjáls verslun - 01.08.1989, Side 5
RITSTJÓRNARGREIN STJÓRNMÁLAMENN ERU ILLA LAUNAÐIR. Frjáls verslun hefur kannað launakjör nokkurra hópa manna á árinu 1988. Byggt er á upplýsingum sem lesa má úr skattskrám sem lagðar voru fram nú í sumar. Nokkrir einstaklingar voru valdir af hand- ahófi úr þeim starfsstéttum sem skoðaðar voru en þær eru flestar hverjar taldar meðal hálaunastétta hér á landi. Skattskyldar heildartekjur manna á árinu 1988 voru athugaðar. Þó niðurstöðurnar séu á engan hátt tæmandi er engu að síður ljóst að þær gefa góðar vísbendingar. Launakjör stjórnmálamanna vekja mesta athygli okkar. Þau eru ótrúlega slæm miðað við kjör ann- arra sem litið var á. Fram kemur að unnt er að nefna dæmi um opinberan embættismann sem hefur fjór- föld laun á við forsætisráðherra landsins. Ymsir opinberir embættismenn eru mun betur launaðir en ráðherrar sem þó eru yfirmenn þeirra og æðstu em- bættismenn ríkisins. Þetta kemur á óvart og vekur furðu. Svo virðist sem embættismenn, ýmsir sérfræð- ingar og forsvarsmenn stærri fyrirtækja njóti mun betri launakjara en stjómmálamenn þrátt fyrir þá ábyrgð sem ætla verður að hvíli á stjórnmálamönn- um og þær kröfur sem óhjákvæmilega verður að gera til þeirra. Þetta er mjög óæskilegt og getur raunar verið stórhættulegt ef launakjör verða til þess að fæla hæfa menn frá pólitískum afskiptum. Full ástæða er til að skoða það í alvöru hvort ekki beri að stórhækka laun alþingismanna og ráðherra ef það mætti verða til að laða fleiri hæfa einstak- linga að landsstjórninni. Við mælum hins vegar ekki með aukningu ríkisútgjalda þannig að hin aug- ljósa leið í þessu er að fækka alþingismönnum og ráðherrum samhliða hækkun á launum þeirra. Enda getur ekki verið að dvergríkið Island þurfi alla þessa menn til að fylla ríkisstjórn og sitja á alþingi! I þessu sambandi má spyrja hvað það sé sem laði menn að stjórnmálaþátttöku því jafnan komast færri að en vilja. Ekki eru það launin. En peningar eru heldur ekki allt þó því verði ekki á móti mælt að þeir skipta máli. Ekki er hægt að útiloka að á meðal stjórnmálamanna leynist einhverjir hugsjónamenn sem sæki í þessi störf af hugsjón einni saman. En líklegasta skýringin er samt sú að ásókn í áhrif og völd ráði ferðinni hjá flestum stjórnmálamönnum samfara athyglissýki á misalvarlegu stigi. Bætt launakjör stjórnmálamanna ættu að skila fleiri hæfum einstaklingum til forystu í landsmál- unum. Ekki veitir af! Stofnuð 1939 Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Helgi Magnússon — RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Valþór Hlöðversson — AUGLÝ SIN G ASTJ ÓRAR: Sjöfn Sigurgeirsdóttir og Kristrín Eggertsdóttir — LJÓSMYNDARAR: Grímur Bjamason, Gunnar Gunnarsson, og Kristján Einarsson — ÚTGEFANDI: Frjálst framtak M. — Tímaritið er gefið út í samvinnu við samtök í verslun og viðskiptum — SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Ármúli 18, sími 82300, Auglýsingasími 31661 - RITSTJÓRN: Bildshöfði 18, sími 685380 - STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson — AÐALRITSTJÓRI: Steinar J. Lúðvíksson — FRAMKVÆMDASTJÓRI: Halldóra Viktorsdóttir — ÁSKRIFTARVERÐ: 2.280 kr. (380 kr. á eintak) - LAUSASÖLUVERÐ: 449 kr. - SETNING, TÖLVUUMBROT, PRENTUN OG BÓKBAND: Prentstofa G. Benediktssonar — LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir 5

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.