Frjáls verslun - 01.08.1989, Page 9
FRETTIR
ISLANDSBANKI:
ÞRÍR SJÓÐIR SAMEINAST
Fyrir liggur ad verdbréfa-
markaðir Iðnaðarbank-
ans, Útvegsbankans og
Alþýðubankans verða
sameinaðir í einn verð-
bréfamarkað á næstunni.
Stefnt er að því að sam-
eining þeirra geti farið
fram fyrir áramót. Sam-
eining verðbréfamark-
aðanna er mjög aðgengi-
leg þar sem þeir eru hver
um sig að öllu leyti í eigu
viðkomandi banka.
Hins vegar er alls ekki
víst að til sameiningar
fjármögnunarfyrirtækj -
anna Glitnis og Féfangs
komi þar sem þau eru
ekki að öllu leyti í eigu
bankanna. Verslunar-
bankinn á með beinum og
óbeinum hætti um þriðj-
ung í Féfangi og Glitnir er
að meirihluta til í eigu út-
lendinga en Iðnaðarbank-
inn á minnihlutann.
Sömu sögu er að segja
um Fjárfestingarfélag Is-
lands hf. Fátt bendir til að
bankasameiningin muni
hafa áhrif á rekstrarfyrir-
komulag þess. Verslun-
arbankinn á um 31% fé-
lagsins, Eimskip 25% og
Lífeyrissjóður Verslun-
armanna 10%.
Fróðlegt verður að sjá
hvort bankasameiningin
muni hafa áhrif á starf-
semi kreditkortafyrir-
tækjanna. Islandsbanki
mun eiga 50% í Eurocard-
fyrirtækinu og 13% í
VÍSA ísland og verða þar
með fyrsti bankinn sem á
í báðum fyrirtækjunum.
Talið er fremur ólíklegt
að það fyrirkomulag verði
til frambúðar.
FLUGLEIÐIR:
HAGNAÐUR AF FLUGVELUM
Ákvörðun Flugleiða
um kaup á 5 nýjum
Boeing þotum fyrir á ann-
an tug milljarða króna er
stærsta fjárfestingará-
kvörðun sem íslenskt
einkafyrirtæki hefur tek-
ið.
Samkvæmt heimildum
Frjálsrar verslunar hefur
félagið verið ákaflega
heppið með þessar þýð-
ingarmiklu ákvarðanir
sínar því verð á þessum
flugvélum er sagt vera
mjög hátt og fara hækk-
andi á heimsmarkaði. Um
þessar mundir er vöntun
á þotum og framleiðendur
þeirra hafa ekki undan
við framleiðsluna. Talið
er að framhald verði á að
eftirspurn eftir farþega-
þotum verði meiri en
framboðið og því muni
verð á þeim hækka
áfram.
Talið er að Flugleiðir
geti selt þær Boeing þot-
ur sem félagið á nú í smíð-
Flugleiðir hagnast á flug-
vélum í smíðum.
um með umtalsverðum
hagnaði ef það þætti
henta. Þá er verið að tala
um tveggja til þriggja
milljón dollara hagnað á
vél - einungis fyrir að yfir-
taka samninginn.
Ekki er talið að nein
áform séu uppi hjá Flug-
leiðum um annað en að
taka þoturnar í notkun en
ljóst er að félagið hefur
bætt fjárhagsstöðu sína
um hundruði milljóna
króna með því að festa
kaupverð á þotum sem
fara hækkandi í verði á
heimsmarkaði.
Sverrir Arngrímsson.
SVERRIR
TIL MVB
Meistara- og verktaka-
samband byggingar-
manna hefur ráðið Sverri
Arngrímsson viðskipta-
fræðing í starf fram-
kvæmdastjóra sam-
bandsins.
Sverrir er 33 ára. Hann
lauk viðskiptafræðiprófi
frá Háskóla Islands árið
1981 og réði sig skömmu
síðar sem fjármálastjóra
hjá málningarverksmiðj-
unni Hörpu hf. og gengdi
því starfi þar til hann tók
við núverandi stöðu. Á
námsárum sínum vann
Sverrir í Iðnaðarbankan-
um og hjá B.M.Vallá.
Meistara- og verktaka-
samband byggingar-
manna er heildarsamb-
and byggingarmanna á
landinu öllu og gætir
hagsmuna þeirra á vinn-
umarkaðnum, gagnvart
stjórnvöldum og öðrum.
Formaður sambandsins
er Gunnar S. Björnsson.
SAMSOLUBRAUÐ EFSTIHUGA
Fyrr í sumar fór fram
skoðanakönnun þar sem
hringt var í 800 síman-
úmer og spurt m.a. um
sj ónvarpsauglýsingar
sem fólk myndi eftir. Nið-
urstaðan var sú að mest
hafði verið tekið eftir
auglýsingum um Sam-
sölubrauð. Aldursskipt-
ing, kynjaskipting og
landssvæðaskipting
breytti engu um forystu
Samsölubrauðanna.
Meðal annarra sjón-
varpsauglýsinga sem fólk
hafði tekið eftir má nefna
Eurocard, Coca Cola og
Áfengisvandamálið.
9