Frjáls verslun - 01.08.1989, Page 12
FRETTIR
SAMVINNUBANKi/LANDSBANKI:
KAUPIN ÁKVEÐIN
Talsmenn SÍS og
Landsbankans hafa látið í
veðri vaka að undanförnu
að viðræður um kaup
Landsbankans á Sam-
vinnubankanum liggi
niðri. Það mun ekki vera
rétt því að tjaldabaki hafa
viðræðurnar haldið
áfram og leitt til þess að
þegar liggur fyrir að
Landsbankinn kaupi hlut
samvinnuhreyfingarinn-
ar í Samvinnubankanum.
Ekki sé lengur spurning
um hvort - heldur hve-
nær.
/ /
/ /
ÞYSK-ISLENSKA/UTSYN:
SJÁLFSBJÖRG SEMUR
Sjálfsbjörg, landssam-
band fatlaðra, gerði ný-
lega samning við Þýsk-ís-
lenska hf. og Ferðaskrif-
stofuna Utsýn hf. sem
FRÍSTUND SF:
BÝÐUR ALHLIÐA HEIMILISRAFEINDATÆKI
Nýlega keypti Frístund
rafeindatæki sf. þau
vöruumboð sem áður
voru á vegum Nesco
Laugavegur hf. Jafnframt
tók fyrirtækið að sér alla
ábyrgðarþjónustu sem
Nesco hafði áður haft með
höndum.
Frístund sf. verður
fyrst og fremst rekin sem
heildverslun en verður þó
með sýningarbás fyrir
tæki sín í Skútuvogi 11.
Fyrirtækið hefur komið
sér upp umboðs- og sölu-
aðilum um land allt og
mun byggja á þeim varð-
andi smásölu á vörum
sínum, en meðal þeirra
umboða sem Frístund raf-
eindatæki sf. hefur tekið
að sér má nefna: Grundig,
Orion, Akai, Clarion, Fi-
delity, Crown, Thorens,
Xenon, Mission og
Schneider.
Fyrirtækið er í eigu
fjögurra ungra manna
sem allir starfa við það.
Ástþór Bjarni Sigurðsson
er framkvæmdastjóri en
hann hefur um árabil haft
með höndum verslunar-
rekstur í Keflavík og
Njarðvík.Þór Ostensen er
sölustjóri, Helgi Magnús
Hermannsson er inn-
kaupastjóri og Davíð Ein-
ar Sigmundsson rafeinda-
tæknifræðingur sér um
eftirþjónustu og veitir
verkstæði fýrirtækisins
forstöðu.
gengur út á það að fyrir-
tækin munu styrkja
Sjálfsbjörgu um milljónir
króna á næstu árum.
I samningnum er einn-
ig gert ráð fyrir því að Út-
sýn, fyrst íslenskra ferða-
skrifstofa, muni skipu-
leggja a.m.k. eina
veglega sumarleyfisferð
á ári sem henti fötluðum.
Samningurinn var und-
irritaður af Jóhanni Pétri
Sveinssyni formanni
Sjálfsbjargar og Ómari
Kristjánssyni fyrir hönd
Þýsk-íslenska og Útsýn-
ar. Þeir sjást á meðfylgj-
andi mynd ásamt öðrum
sem viðstaddir voru und-
irritun samningsins.
IBM:
KYNNIR FJOLSKYLDUTOLVU
IBM á íslandi er nú að
hefja kynningu á fjöl-
skyldutölvu hér á landi.
Kynningar hófust í
Kringlunni í samstarfi
við Gísla J. Johnsen og
Skrifstofuvélar hf. og svo
áfram umhverfis landið.
IBM fjölskyldutölvan
er PS/2 tölva af fullkomn-
ustu gerð. Henni fýlgir
hágæða litaskjár, mús til
að auðvelda vinnslu og
prentari. Fjölskyldutölv-
an er þannig úr garði gerð
að vonast er til að allir á
heimilinu finni eitthvað
við sitt hæfi. Hún er talin
henta til margvíslegra
starfa eins og skýrslu-
vinnu, töfluuppsetning-
ar, ritvinnslu, íyrir heim-
ilisbókhaldið, uppskriftir
og hvað eina sem hafa
þarf reglu á. Fyrir börn og
unglinga fylgir sérstakur
hugbúnaður, stærðfræði-
spil og svokölluð hermi-
líkön. Þessi forrit inni-
halda ýmsa þroskandi
leiki og veita margvís-
lega fræðslu og þjálfun.
12