Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1989, Side 14

Frjáls verslun - 01.08.1989, Side 14
FORSIÐUGREIN HAPPORETTISFÍKN ÍSLENDINGA: EYÐA SEX MILUÖRÐUM ÁÁRI • 80-90 ÞÚSUND Á FJÖLSKYLDU Á ÁRI • HAPPDRÆTTIHÁSKÓLANS MEÐ YFIRBURÐI • LUKKUHJÓLIÐ HÆGIR Á SÉR • SKAFMIÐAR AÐ GRANDA SKYNDIHAPPDRÆTTUM Það hefur stundum farið það orð af okkur Islendingum að við værum fram úr hófi nýj- ungagjamir. Að við tileinkuð- um okkur nýjungar með mjög afgerandi hætti og að stundum fæmm við offari fremur en hitt. Bent hefur verið á að til- tölulega stutt sé um liðið frá því íslendingar fóm að komast í álnir og í þjóðarsálinni búi sú sterka kennd að sýna sjálfum sér og öðmm fram á að tími saggafullra torfkofa sé liðinn en hin nýja öld gengin í garð. Á þessari fíkn okkar í það að vera fremstir í lífsgæðakapphlaupinu kunna að vera fleiri skýringar. Ein er tiltölulega rúmur efnahagur og önnur sú staðreynd að í fásinni skammdeg- isins hér á norðurhjara þyki fólki ekki of gott að verja tiltölulega háum hluta tekna sinna til lífsgæða af því tagi sem mölur og ryð fá auðveldlega grandað. Þess vegna er fólk tilbúið til að vinna langan vinnudag og að afla tiltölulegra hárra tekna til þess að geta eytt þeim jafnharðan í lífsins gæði. Engin þjóð ferðast eins mikið út fyrir landstein- ana og við. Engin þjóð hefur væðst eins vel myndbandstækjum, símum, tölvum og öðrum fjarskiptatækjum og við. Engin þjóð býr í jafn glæsilegum húsakynnum og við. Og engin þjóð á eins mikið af fótanuddtækjum og ís- lendingar. Fleiri eru freistingarnar og þær eru einmitt til að falla fyrir þeim. Á síð- ustu árum hefur stóraukist hvers konar iðja þar sem menn leggja fjár- hæðir undir í von um skjótfenginn gróða. Happdrætti eru í þessu landi, eins og raunar öðrum á vesturhveli jarðar, af margvíslegu tagi og ásókn í að halda þeim gangandi hefur stór- aukist á síðasta áratug. Möguleikum hefur fjölgað og í stað hefðbundinna happdrætta til skamms tíma hefur hellst yfir landslýð alls konar afbrigði TEXTI: VALÞÓR HLÖÐVERSSON MYNDIR: KRISTJÁN E. EINARSSON TEIKNING: BÖÐVAR LEÓS 14

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.