Frjáls verslun - 01.08.1989, Qupperneq 16
FORSIÐUGREIN
Fljótlega eftir að Happdrætti Há-
skóla íslands hafði verið hleypt af
stokkunum komu tvenn önnur sam-
tök í kjölfarið. Samband íslenskra
berklasjúklinga, SÍBS, hóf rekstur
vöruhappdrættis árið 1949 og var
tilgangurinn sá að afla fjár til
byggingar Reykjalundar
í MosfeUssveit. Æ
síðan hefur happ-
drættið verið nán-
ast eina tekjulind
samtakanna og
skilað þeim veru-
legum arði í gegn-
um árin.
Nokkrum árum
síðar eða um miðj-
an 6. áratuginn,
hófst rekstur happ-
drættis Dvalarheimilis
aldraðra sjómanna. í lög-
unum er ekki kveðið á um að
það sé vöruhappdrætti heldur er þar
nánar skilgreint hvaða hlutir skulu
greiddir í vinninga, þ.e.a.s. bifreiðar,
bifhjól, bátar, búnaðarvélar, íbúðar-
hús og einstakar íbúðir, húsbúnaður,
hljóðfæri, búpeningur, flugvélar og
farmiðar til ferðalaga. Skýrt og skor-
inort!
Þessi þijú happdrætti voru einráð á
íslenskum markaði næstu áratugi ef
undan eru skilin happdrættin sam-
kvæmt lögum frá 1926 sem áður var
minnst á. Hins vegar má ekki gleyma
lögum frá árinu 1945 sem heimila
dómsmálaráðherra að veita leyfi til
veðmálastarfsemi í sambandi við
kappreiðar og kappróður. Vera má að
þama hafi eimt eftir af áhrifum hinna
veðmálasjúku bresku hermanna er
hér dvöldu á árunum 1940-43 en okk-
ur er ekki kunnugt um að þessi heim-
ild hafi verið nýtt að marki. Sam-
kvæmt henni máttu hestamannafélög
reka veðmálastarfsemi enda rynnu
10% hagnaðar til reiðvega og sjó-
mannadagsráð mátti gera slíkt hið
sama varðandi kappróðra á Sjó-
mannadaginn enda rynnu 75% ágóð-
ans til sjóminjasafhs! Sannarlega
þjóðþrifamál og ef til vill fær leið fyrir
Sjóminjasafn íslands að auka tekjur
sínar.
Það er svo ekki fyrr en árið 1972 að
lög eru sett um íslenskar getraunir til
eflingar félögum innan fþróttasam-
bands íslands og Ungmennafélags ís-
lands og árið 1986 em sett lög um
talnagetraunir eða það fyrirbrigði
sem við nefnum lottó í daglegu tali.
EINFALDAR STARFSREGLUR
Segja má að öll skyndi-
happdrætti á landinu eigi
sér aðeins stoð í einni
setningu í lögum frá
árinu 1926, að engin
reglugerð gildi fyrir
þau og að það sé
háð samþykki em-
bættismanna í
dómsmálaráðun-
eyti hvort og með
hvaða hætti slík
happdrætti skuli
leyfð.
Jón Thors í dómsmál-
aráðuneytinu sagði í sam-
tali við Frjálsa verslun að varð-
andi leyfisveitingar giltu starfsreglur
ráðuneytisins, sem mótast hefðu í
gegnum árin. í fyrsta lagi þyrfti að
vera um að ræða fjáröflun til líknar-
mála og þjóðþrifamála almennt séð. I
öðru lagi yrðu viðkomandi að taka
skýrt fram fjölda vinninga og verð-
mæti þeirra. í þriðja lagi þyrftu að
koma fram á miðunum upplýsingar
um dráttardag og hverjir stæðu að
viðkomandi happdrætti. Þá væri
einnig nauðsynlegt að taka fram fjölda
útgefinna miða og gefa ráðuneytinu
upplýsingar um vinningshlutfall.
Eins og áður sagði styðjast ráðu-
neytismenn við hefðir þegar þeir gefa
leyfi til reksturs happdrætta í fjáröfl-
unarskyni. Ein hefðin er sú að í
skyndihappdrættum, sem dregið er í
eftir á, verði vinningshlutfall að vera
að minnsta kosti 16.67% Um happ-
drætti sem ekki er dregið í eftir á,
þ.e. skafmiðahappdrættum, gildir
40% vinningshlutfall og að sögn Jóns
eru sum happdrættin af því tagi með
allt að 50% vinningshlutfall.
Jón Thors sagði að bingó væru
einnig leyfisskyld en engar ákveðnar
reglur væru að öðru leyti um þá teg-
und fjáröflunaraðferðar. Þrír aðilar
eru með leyfi til bingórekstrar og hafa
templarar verið manna duglegastir að
tileinka sér þessa aðferð. Hins vegar
væru bingó og happdrætti á lokuðum
skemmtunum ekki leyfisskyld.
Aðspurður kvað Jón Thors lengi
hafa staðið til að endurskoða löggjöf
um happdrætti en í önn daganna hefði
sú vinna orðið að sitja á hakanum og
því væri frumvarp til laga sem og
reglugerð ekki í sjónmáli samkvæmt
hans vitund.
Flestir viðmælendur blaðsins voru
á því að of mikið stjómleysi ríkti á
þessum markaði. Nánast hver sem er
Skafmiðar hafa gjörbreytt íslenska happdrættismarkaðnum og allt bendir
til að hann standi nú á tímamótum. I samkeppninni um skafmiðana er
Happaþrenna Háskólans og Lukkutríó björgunarsveitanna með algjöra yfir-
burði.
Happdrætti
Háskóla íslands er
langstærsta
happdrættið með tæplega
1,5 milljarða veltu á
síðasta ári. Happaþrennan
skilaði verulegum hagnaði
og hún er sá skafmiði
sem best hefur selst
frá upphafi.
16