Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1989, Side 19

Frjáls verslun - 01.08.1989, Side 19
SIBS, DAS og Háskólahappdrættið eru þau einu sem starfa eftir sérstökum lögum og reglugerð. Engin reglugerð er til fyrir skyndihappdrætti sem velta hundruðum milljóna á ári hverju. Happdrætti DAS seldi á síðasta reikningsári fyrir um 108 milljónir. Sala Gullmolans var rúmlega 30 millj- ónir á reikningsárinu en þess má geta að hún hófst ekki fyrr en í nóvember á síðasta ári. Af þessu sést hvílíka yfir- burði Happdrætti HÍ hefur yfir hin hefðbundnu happdrættin og ekki spillir vöxtur og viðgangur skafmið- anna fyrir þeim Háskólamönnum. Hagnaður þessara hefðbundu happdrætta er einnig afar misjafn. Að sögnjóhannesar L.L. Helgasonar hjá HHI námu hreinar tekjur af happ- drættinu um 340 milljónum króna, en þar af runnu 20% í formi einkaleyfis- gjalds til ríkissjóðs. Ólafur Jóhannes- son hjá SÍBS sagði hagnaðinn hafa numið 37 milljónum króna í fyrra og Baldvin Jónsson sagði hagnað happ- drættis DAS hafa verið um 8 milljónir króna. Við þessar tölur vakna ýmsar spurningar. Hverjir bera mest úr být- um þegar happdrætti eru annars veg- ar? Greinilegt er að í mörgum tilfell- um eru það ekki þeir sem standa fyrir fjáröfluninni og óvíst er hvort kaup- endur miðanna hirða meginhluta ág- óðans. Sennilega eru það alls kyns milliliðir sem hafa sitt á þurru og má í því sambandi nefna söluaðila, auglýs- ingastofur, prentsmiðjur og aðra þá sem koma nærri þessari miklu pen- ingaveltu. — En spáum áfram í spilin. fslensk Getspá seldi lottómiða fyrir GOTT ÚRVAL af notuðum skrifstofu- húsgögnum, mestallt nýlegt á 50% verði og minna, erum með línur á heilu skrifstofurnar, skrifborð, fund- arborð, tölvuborð, afgreiðsluborð, skrifstofustóla, kúnnastóla, skilrúm, leðurhœgindastóla, skjalaskápa, tölv- ur o.m.fl. Ath. Tökum í umboðssölu eða kaup- um vel með farna hluti. Skipholt 50b, jarðhœð. Sími 626062. VERSLUNIN SEM VANTAÐI. Skipholt 50b, jarðhœð. Sími 627763.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.