Frjáls verslun - 01.08.1989, Page 39
SJONVARPSGLAP BANDARISKRA BARNA:
23 KLUKKUSTUNDIR A VIKU
Niðurstaðan er afdráttarlaus: Fólk
ætti ekki að láta böm horfa jafn mikið
á sjónvarp og raun ber vitni.
Félag bandarískra barnalækna
hefur látið valinkunnan sérfræðing
kanna hvaða áhrif sjónvarpsgláp hefur
á börn. Niðurstaða hans er sú að sjón-
varpsgláp geti vakið ofbeldishneigð
hjá börnum, stuðlað að árásargirni og
ruddalegri hegðun og lagt grunn að
offitu.
Sérfræðingurinn sem starfar við
háskólann í Boston er nú að rannsaka
tengsl á milli kynferðislegrar hegðun-
ar, misþyrminga verðmæta, rudda-
legs orðbragðs og lágra einkunna.
Hann segir að bandarísk börn og
unglingar glápi á sjónvarp í um það bil
23 klukkustundir að meðaltali á viku.
Þegar þau ná stjötugsaldri má ætla að
þau hafi eytt sjö árum ævi sinnar við
sjónvarpsskerminn.
Algengt er að þau horfi á um
14000 kynferðisleg atriði á hverju ári
TEKJURNAR
EKKI
AÐALATRIÐIÐ
Átta þúsund fullorðnir Bandaríkja-
menn voru nýlega spurðir að því
hvaða mat þeir legðu á sjö þætti lífsb-
aráttunnar, sem snerta alla meira eða
minna. Svörin voru gefin í einkunnum
frá 1 upp í 10.
Niðurstaðan varð þessi:
Menntun bamanna 7.14
Fjölskyldan 7.05
Heilsan 7.02
Lífsgæði 6.80
Vinir og ættingjar 6.46
Kynlíf 6.11
Tekjur 5.91
og eru þá slík atriði sem felast í aug-
lýsingum ekki meðtalin. Þau horfa
líka á u.þ.b. 2000 auglýsingar varð-
andi bjór og vín á hverju ári.
Doktorinn, sem að rannsóknun-
um vinnur, telur að 75% allra tón-
listarmyndbanda séu framleidd með
kynferðislegu ívafi og um helmingur
þeirra sé ofbeldiskenndur.
Það er því ljóst að sjónvarpið
getur aldrei leyst foreldra af hólmi.
Þeir verða að gefa sér tíma til að vera
með bömum sínum.
Endursagt
A.St. - Denver
Prentum
borðfána
Prentum allar tegundir borðfána.
Fjölmargar stærðir og ótal litamöguleikar.
Gerum verðtilboð ef óskað er.
Munið að panta tímanlega.
Verið velkomin til skrafs og ráðagerða.
Heimilisfangið er Vagnhöfði 14.
Prentum
einnig:
límmiða • endurskinsmerki • útifána • skilti
• límmiða á bíla • merkingar í glugga • minnis-
miðakubba • á boli og peysur • á plastmöppur •
dagbækur • Við prentum á næstum hvað sem er
Silkiprent
Vagnhöfði 14 — 110 Reykjavík.
Sími 685266.
39