Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1989, Side 45

Frjáls verslun - 01.08.1989, Side 45
BÆKUR ISLENSK FYRIRTÆKI20 ARA t FYRIRTÆKIASKRÁ • SKRÁ YFIR ÚTFLYTJ ENDU R • SKIPflSKRfl • UMBODASKRÁ Undirbúningur að útgáfu við- skiptahandbókarinnar IS- LENSK FYRIRTÆKI 1990 sem koma á út í janúar nk. er nú haf- inn. Útgefandi er Frjálst fram- tak hf. en ritstjóri Halldóra J. Rafnar. Bókin ÍSLENSK FYRIRTÆKI kom fyrst út árið 1970. Á þessum 20 árum hefur bókin vaxið og tekið mikl- um breytingum. Er óhætt að segja að ÍSLENSK FYRIRTÆKI sé fullkomn- asta bók sinnar tegundar hér á landi. í fyrirtækjaskránni, sem er lang- veigamesti hluti bókarinnar, eru upp- lýsingar um flest starfandi fyrirtæki, félög og stofnanir á íslandi. Þá eru í bókinni ýmsar aðrar hagnýtar skrár. T.d. yfir útflytjendur, íslensk skip, umboð og 2500 flokka vöru- og þjón- ustu. Einnig eru í henni upplýsingar unnar í samráði við Útflutningsráð sérstaklega ætlaðar útflytjendum. Þá eru upplýsingar um helstu hafnir á íslandi. Til þess að bók á borð við ÍS- LENSK FYRIRTÆKI þjóni tilgangi sínum þurfa upplýsingamar að vera nýjar og réttar en breytingar milli ára eru ótrúlega miklar og við liggur að á hverri einustu síðu séu einhver atriði sem þarf að breyta frá ári til árs. Þess vegna er haft samband við hvert ein- asta fyrirtæki árlega og verða sölu- menn á ferðinni næstu vikur í þeim íslensk fyrirtæki. Halldóra Rafnar. tilgangi að sannreyna hvaða fyrirtæki eru starfandi og hvort þær upplýsing- ar sem í bókinni eru séu réttar. Sá sem kaupir skráningu í fyrir- tækjaskránni getur komið þar að öll- um þeim upplýsingum sem hann vill. Einnig getur hann látið birta myndir og merki án þess að greiða aukalega fyrir það. Þá getur fyrirtækið skráð þjónustu sína og þær vömr sem á boðstólum eru í eins marga af flokk- unum 2500, sem í vöru- og þjónustu- skránni eru, og viðkomandi kýs og jafnvel látið búa til nýja flokka. Sama gildir um umboðsskrána. í hana geta fyrirtækin skráð umboð sín án þess að greiða aukalega fyrir. í ár verður einnig boðið upp á sérstaka skráningu í vöru- og þjónustuskrána/umboða- skrána. 45

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.