Frjáls verslun - 01.08.1989, Síða 53
í mjög skuldsettum fyrirtækjum þar
sem lántakan er við eða nærri efri
mörkum og sérhvert frávik frá áætl-
unum þarf að skýra ítarlega fyrir við-
komandi banka. íslenskir bankastjór-
ar eru ekkert frábrugðnir bankastjór-
um annars staðar að því leyti að vera
ákaflega tortryggnir þegar breytingar
á áætlunum eiga sér stað og mjög
tregir til að leggja fram viðbótarfé.
Það kann að þykja sérkennilegt en
varkárar framleiðsluáætlanir í laxeldi,
byggðar á slæglegri frammistöðu í
erfiðu ári, krefjast oft viðbótarfjár-
magns þegar árið er betra en gert var
ráð fyrir (þ.e. fiskurinn vex hraðar
eða verður stærri) og minna viðbót-
arfjármagns til veltufjármyndunar
þegar ver gengur. Það er ekki auð-
velt að útskýra það fyrir bankastjór-
um að viðbótarlán séu nauðsynleg
vegna bættrar framleiðslu en ekki
vegna minni framleiðslu en áætlað
var!
Mín reynsla af íslenskum banka-
stjórum er sú að þeir séu mjög líkir
bankastjórum annars staðar — hæg-
fara, varkárir og að hneigðir til íhald-
semi. Mikil ítök ríkisins í banka- og
fjármálastarfsemi á Islandi leiðir til
ýmiss konar afbrigðilegheita sem þó
eru þekkt annars staðar. í fyrsta lagi
er krafist margs konar
skriflegra gagna sem
bankastjórarnir
hafa engin tök á
að meta. Það er
algeng lexía sem
opinberir starfs-
menn læra fljótt
að það að gera
ekkert er betra en að
gera eitthvað — sem
gæti verið rangt. En ef þú þarft
að gera eitthvað vertu þá a.m.k. með
skýrslu í skjalaskápnum þínum sem
sýnir að það var ekki dómgreind þín
sem brást heldur að upplýsingamar
sem þú fékkst voru rangar. I öðru lagi
er það fyrirbrigðið að „meðhöndla alla
umsækjendur á sama hátt“ sem ekki
er óalgengt í ríkisbönkum í smærri
löndum. Að öllum sem hafa hug á að
fara út í laxeldi eigi að standa til boða
svipaðir fjármögnunarpakkar —
heimspeki í ætt við það að dæma alla
glæpamenn til sömu fangelsisvistar!
Þegar um mikla skuldsetningu er
að ræða þá eykst mikilvægi
veða til tryggingar
skuldunum umfram
það sem annars
þyrfti að vera. í
sumum fiskeldis-
fyrirtækjum,
einkanlega þó á
Islandi, hefur
spurningin um útveg-
un veða náð slíkri fágun
að hægt er að tala um sjálfstætt
listform! Það felur m.a. í sér vafasam-
ar ábyrgðir, misnotkun á vátrygging-
arskírteinum og verðmætamat eigna
byggðu á óraunhæfum grunni.
Flestum sem starfa við laxeldi ætti
að vera ljóst að verðmæti gjaldþrota
laxeldisfyrirtækis byggist eingöngu á
mati kaupenda á getu sinni í að starf-
Aðeins þarf fá, stór
og áberandi gjaldþrot með
stuttu millibili til að tryggja það
að bankar, fjárfestar, ríkisvaldið og
tryggingafélögin loki dyrum sínum
fyrir auralausum
fiskeldisfyrirtækjum.
r\5ka
Glerborgar K-qlerið
...tvöfalt
betraen
þrefalt!
Með tvöföldu K-einangrunargleri eru kröfur nýrrar
byggingareglugerðar um einangrunargildi að fullu upp-
fylltar. Þannig losar K-glerið húsbyggjendur undan
þeirri kvöð að glerja hús sín með venjulegu þreföldu
einangrunargleri. K-gierið hleypir sólarjjósi og yl inn en
kemur með sérstakri einangrunarhúð í veg fyrir að hitinn
streymi út. K-glerið á erindi til allra íslenskra húsbyggj-
enda.
Gluggaðu í okkar gler.
GLERBORG HF.
DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIRÐI - SÍMI53333
■o
'sx
g>
c
05
3
<