Frjáls verslun - 01.08.1989, Blaðsíða 56
AÐ UTAN
STJÓRNENDUR LIFA LENGUR
Bandaríska viðskipta-
blaðið INC hefur komist
að óvæntri niðurstöðu
um heilsu og aldur fyrir-
tækjastjórnenda.
Stjórnendur 500 fyrir-
tækja, sem eru í örum
vexti, tóku þátt í rann-
sókninni en hún var gerð
í samvinnu við General
Health INC. Rannsóknin
leiddi í ljós að samanbor-
ið við meðal-Bandaríkja-
manninn þá eru fyrir-
tækjastjórnendur með-
vitaðri um heilbrigt líferni
og hafa því betri heilsu.
Sem dæmi má nefna að
meira en helmingur fyrir-
tækjastjórnendanna í úr-
takinu hafði aldrei reykt
og aðeins 15% þeirra eru
reykingamenn. Að með-
altali iðka þeir íþróttir 4
tíma á viku. Engu að síð-
ur eru 70% þeirra yfir
meðalþyngd og meira en
'A hluti hópsins telur sig
neyta áfengis fram úr
hófi. Þar af leiðandi eru
líkurnar fyrir því að þessi
hópur fólks deyi vegna
skorpulifrar tvisvar sinn-
um meiri en hjá öðrum
Bandaríkjamönnum. Aft-
ur á móti er krabbamein
eða hjartabilun óalgeng-
ari dánarorsök meðal
þessara aðila en annarra
Bandaríkjamanna. En
kapphlaupið við klukk-
una er að öllum líkindum
ástæðan fyrir því að helm-
ingi fleiri fyrirtækja-
stjómendur láta lífið í um-
ferðarslysum en meðal-
Bandaríkjamaðurinn.
(INC)
A AD „LEY$A“ OLL VANDAMAL
Að leysa öll vandamál,
sem upp koma hjá fyrir-
tækinu, er ekki endilega
dæmi um hæfni þína sem
fyrirtækjastjórnandi.
Dæmi: Hversu oft kemur
starfsmaður inn á skrif-
stofuna þína og segir: „Eg
á í dálitlum vandræðum
...“ eða „Geturðu hjálpað
mér með ...?“ Ef þú svar-
ar á þá leið að þú ætlir að
hugsa málið eða „Við at-
hugum þetta betur
seinna“, þá ert þú með
þessum svömm búinn að
taka að þér málið og gera
vandamál starfsmann-
sins að þínu. Það em 2
einföld ráð sem ættu að
hjálpa þér til að fá meiri
tíma til að sinna verkefn-
um sem bara þú getur
tekið ákvarðanir um: í
fyrsta lagi skaltu biðja
starfsmanninn að leggja
fram hugmyndir til lausn-
ar vandanum. Á þann hátt
hveturðu hann til að
koma með eigin lausnir
og þannig virkjar þú
starfskrafta hans betur. í
öðm lagi skaltu halda aft-
ur af lönguninni að vera
allt í öllu. Vissulega get-
urðu sjálfur leyst mörg
vandamálanna, sem upp
koma, fljótar en þú missir
þá um leið tíma frá verk-
efnum sem að em mun
mikilvægari fyrir fyrir-
tækið. Auk þess þá ger-
irðu starfsmenn þína ós-
jálfstæðari og þar með
síður færa um að finna
lausnir.
(COMMUNICATION BRIEF-
INGS)
JAPANSKT HRAÐFLUTNINGASKIP
Japanska samgöngu-
málaráðuneytið ætlar að
þróa hraðflutningaskip
sem verða tvisvar til
þrisvar sinnum fljótari í
ferðum en núverandi
flutningaskip og þau
munu stytta siglingartí-
mann á skipaleiðinni
milli Japan og Bandaríkj-
anna um 3 daga. Áætlað
er að byggja tilraunaskip
sem verður 100 m langt
og með 1000 tonna flutn-
ingagetu. Samgöngumál-
aráðuneytið áætlar 5 ár
til verksins.
(Business Tokyo)