Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1989, Síða 60

Frjáls verslun - 01.08.1989, Síða 60
LOGFRÆÐI í haust eru líkur á því að komið verði í veg fyrir að skuldarar geti tafið einföld skuldamál með áfrýjun til Hæstaréttar. AÐFÖR ÁN DÓMS En það eru frekari breytingar í vændum sem miða að því að auðvelda kröfueigendum innheimtu skulda. Þann 1. júlí 1992 taka gildi lög um aðför nr. 90/1989. Við gildistöku þeirra verður heimilt að gera aðför til fullnustu kröfum skv. m.a. víxlum, tékkum og skuldabréfum án undan- gengis dóms eða áritunar. Hér er um mjög viðamikla breyt- ingu að ræða og ætti innheimta skulda að ganga hraðar eftir gildistöku lag- anna. Allt sem gerðarbeiðandi þarf að gera áður en aðfarar er krafist er að beina greiðsluáskorun á sannanlegan hátt til gerðarþola með minnst 15 daga fyrirvara þar sem tekið er fram að aðfarar verði krafist fyrir skuldinni ef áskoruninni verði ekki sinnt. Sinni skuldari ekki áskoruninni fer kröfu- hafi með víxillinn, tékkann eða skuldabréfið, eftir atvikum til sýslu- manns eða löglærðra fulltrúa hans og biður skriflega um aðför. Auðvitað er viss hætta á efnislega rangri úrlausn þegar málsmeðferðin er hröð. A móti kemur að mál þau er hér um ræðir eru yfirleitt óumdeild og málavextir mjög einfaldir. Formskil- yrði eru einnig athuguð og er réttur gerðarþola því bærilega tryggður og hættan á rangri úrlausn því ekki mikil. UPPBOÐAMEÐFERÐ DREGST ÚR HÖMLU Við þessar breytingar má segja að málsmeðferð einfaldra skuldamála verði eins hröð og kostur er — þang- að til uppboðsmeðferð hefst. Sér- staklega á þetta við um uppboðsmeð- ferð á fasteignum. Á margan hátt er það eðlilegt og sanngjarnt að upp- boðsmeðferð á fasteignum skuli taka langan tíma og að gerðarþoli eigi rétt á frestum. Það sjónarmið að ekki skuli selja ofan af mönnum og fjöl- skyldum þeirra fyrr en í lengstu lög vegur hér þungt. Uppboðsmeðferð fasteigna dregst þó stundum úr hömlu og er þar við ýmislegt að sak- ast. Oft fá gerðarþolar ítrekaðan frest hjá lögmönnum sem vilja frekar fá skuldina greidda á löngum tíma en að selja ofan af viðkomandi. En hitt er líka staðreynd að einstök embætti sýslumanna standa sig ekki nægilega vel hvað varðar gang uppboðsmála. Nægir þar að nefna embættin í Vík í Mýrdal og Bolungarvík. ÁFRÝJAÐ TIL HÆSTARÉTTAR Það eru gömul sannindi að gerðar- þolar eru oft fljótari en lögspekingar að koma auga á galla einstakra laga. Þannig er það nú mjög vinsælt hjá helstu stórskuldurum landsins að áfrýja þriðja og síðasta uppboði á fast- eign til Hæstaréttar. Þar er málið tekið fyrir þegar að því kemur eftir u.þ.b. ár. Skuldarinn situr því leigu- laust íhúsi, gjarnan veðsettu upp fyrir sjónvarpsloftnet, þangað til Hæsti- réttur hefur fjallað um málið. í lang- flestum tilvikum, þegar þriðja og síð- asta uppboði er áfrýjað, er nákvæm- lega ekkert að framkvæmd uppboðsins heldur er áfrýjað á grund- velli einhverra hártogana sem eiga að heita lögskýringar. Þetta er einungis gert til þess að vinna tíma á kostnað kröfueiganda og kemur sér því oft afar illa fyrir kröfueiganda. En í haust er líklegt að komist verði fyrir þennan leka því nú hefur réttar- farsnefnd, sem er einkum skipuð lög- mönnum og dómurum, samið frum- varp til laga um breytingar á nokkrum greinum laga nr. 75/1973 um Hæsta- rétt. Þar er meðal annars gert ráð fyrir því að hafi menn eitthvað við framkvæmd aðfaragerðar eða upp- boðs að athuga sæti það kæru til Hæstaréttar en ekki áfrýjun. Eins og mönnum er kunnungt tekur kæru- meðferð að jafnaði aðeins nokkrar vikur. Það eru því líkur á því að strax í haust verði komið í veg fyrir að skuld- arar geti tafið einföld skuldamál með áfrýjun til Hæstaréttar. Þann 1. júlí 1992 verður meðferð þessara mála síðan færð í enn fljótvirkara horf. Helstu heimildir: C. Strecken og R. Bender, Access to justice, A world survey, Milan 1978. Procedures facilitating access to justice, Strassbourg 1980. Baumbach, Lauterbach, Albers og Hartmann, Zivilprozessordnung Milnchen 1982. Stefán Már Stefánsson, Um útivistarmál, Úlfljótur 3.tbl. Rvk. 1969. Stefán Már Stefánsson, Áskorunarmál, Úlfljótur 3.tbl. Rvk. 1967. Ámi Tryggvason, Úlfljótur 2.tbl. Rvk. 1949. 60

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.