Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1989, Side 63

Frjáls verslun - 01.08.1989, Side 63
ÞAÐ NÝJASTA í BANDARÍSKUM STÓRMÖRKUÐUM: INNKAUPAVAGNARNIR MEÐ SJÓNVARPSSKERMUM í síðasta mánuði (októ- ber) hófst nýstárleg tilraun með nýja innkaupavagna í stórmörkuðum í Chicago, Atlanta og Los Angeles. Nýju vagnarnir eru með litl- um sjónvarpsskermum sem festir eru á handfang þeirra. Þegar þessum nýju vögn- um er ekið um markaðina nema þeir sendingar frá sendum sem komið er fyrir í hillum eða á borðum inn á milli vörutegundanna. A skermum þessum birtast ýmist auglýsingar um nýst- árlegar tegundir eða góð verðtilboð, samanburður á einingaverði og fleiri tálbeit- ur. VAGNARNIR HEILSA VIÐSKIPTAVINUM OGKVEÐJAÞÁ Á vissum stöðum í markaðinum eru sendar sem bregða á skjáinn á innkaupavagninum mynd af búðinni, þannig að sá, sem er að gera innkaup, eigi auðveldara með að finna það sem hann leitar að. Aðrir sendar skjóta uppskriftum á skjáinn og birta nýjustu veðurspá. Nýju vagnarnir heilsa við- skiptavinum þegar þeir korna inn í búðina og kveðja þá við brottför. „Allt stuðlar þetta að því að gera verslunarferðina skemmtilegri", seg- ir hönnuður hinna nýju innkaupa- vagna. Tilgangurinn með þessum nýju vögnum er að hvetja viðskiptavini til aukinna innkaupa þegar þeir eru komnir í stórmarkaðinn. Raunin er sú að flestir koma í stórmarkaðina án um er, og veruleg áhrif má hafa á söluna með auglýsing- um á staðnum. Því er spáð að viðskipta- vinum stórmarkaðanna muni líka vel við nýju inn- kaupavagnana með sjón- varpsskermunum, að minnsta kosti til að byrja með. Menn eru hins vegar nokkuð sammála um að ef auglýsingamagnið á þessum skermum verður of mikið eða auglýsingaskrum of augljóst verði nýjungin hvorki til bóta né til að auka viðskiptin. 18 MISMUNANDISENDAR Nýju innkaupavagnamir eru með venjulegri vörugrind en und- irvagninn er breiðari og sterkari, m.a. vegna þess að sjónvarpsskerm- urinn vegur um 5 kg. Þeir kosta um 200 dollara eða tæpar 10 þúsund krónur. Meðan tilraunin með vagnana stendur yfir fá stórmarkaðirnir þá án endurgjalds en verða sennilega síðar meir að kaupa þá. Til að byrja með geta stórmarkað- irnir valið um 18 mismunandi sendi- tæki til að hafa í búðunum en hvert þeirra getur sent út fjölda auglýsinga, uppskrifta eða annarra upplýsinga. Fjölbreytnin í senditækninni mun svo aukast hröðum skrefum ef að líkum lætur. Það eru þrjár keðjur stórmarkaða í áðurnefndum borgum sem hafa verið valdar til tilraunarinnar með nýju inn- kaupavagnana. Ef tilraunin tekst vel munu vagnamir væntanlega koma í flesta aðra stórmarkaði á næsta ári. þess að hafa fyrst gert innkaupalista og eru því veikir fyrir frekari innkaup- um. ÁVÖXTUR SAMKEPPNINNAR Samkepnni stórmarkaðanna í Bandaríkjunum er gífurlega hörð, ekki síður en á Islandi og í öðrum löndum. Árleg velta bandarískra stór- markaða nemur um 200 milljörðum dollara en 10 milljörðum dollara er ár- lega varið til ýmislegrar auglýsinga- starfsemi inni í stórmörkuðunum. Forráðamenn markaðanna segja að venjulegar auglýsingar í dagblöðum, tímaritum og sjónvarpi nái ekki nógu fljótt til viðskiptavina. Kostaboð á grænmeti, ávöxtum, kaffi eða öðrum vörutegundum verði að kynna í búð- unum sjálfum. í búðunum er vöruval- ið svo mikið að viðskiptavinirnir eygja ekki nema brot af því, sem á boðstól- Viðskiptavinirnir geta horft á auglýsingar eða fengið uppskriftir og margskonar upplýsingar meðan þeir fara um búðina og velja sér vörur. 63

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.