Frjáls verslun - 01.08.1989, Side 65
lýst hafa átt sinn mikla þátt í vexti
félagsins frá 1971, er það hóf starf-
serni sína með þremur flugvélum, þar
til nú að það á 84 véla flota.
Tekjur félagsins í fyrra námu 778
milljónum dollara, sem er lítið í sam-
anburði við „flugrisann í Texas“,
Texas Air, sem á einnig Eastern Air-
lines og Continental. Velta þeirra
þriggja samanlagt nam 8.4 milljörðum
dollara í fyrra, en samt varð bullandi
tap á rekstrinum. Southwest stækkar
jafnt og þétt og áætlar að flytja 14
milljónir farþega á þessu ári og bæta
fjórum þotum í flugflota sinn.
Herb Kelleher er lögfræðingur að
mennt. Hann er nú 57 ára gamall en
tekur lífinu mátulega alvarlega. Hann
er þekktur fyrir það að mæta á mikils-
verða fundi í skrautlegum stuttbuxum
og léttri skyrtu og segir að menn eigi
ekki alltaf að klæðast eins og þeir séu
að fara í jarðarför.
Og Kelleher hefur átt hugmyndir
að ýmsum nýjungum t.d. ákvað hann
fyrstur allra að selja „stand-by“ flug-
farseðla í sjálfsölum í matvörubúðum.
Samt segir hann, að öllu séu takmörk
sett og það sé ýmislegt, sem hann
mundi aldrei gera, þó það kæmi
Southwest vel.
Þýtt og endursagt — A.St. Den-
ver, Colorado.
SKYNDIBITINN í BANDARÍKJUNUM:
OGNAR HEILSU
BARNA
Tvö af hverjum þremur bandarísk-
um börnum hafa allt of mikið kólester-
ólmagn í líkama sínum. í tíunda hverju
bami fer magnið yfir 200 einingar, en
eðlilegt kólesterólmagn er talið vera
150 einingar. Bandarískir næringar-
læknar telja, að þetta muni valda
helmingi þeirra barna, sem nú eru að
alast upp, vandræðum síðar á lífsleið-
inni.
Ástæðurnar fyrir þessari slæmu
þróun er of mikil neysla skyndibita-
fæðu, ófullkomnar skólamáltíðir, lífs-
venjur foreldra og erfðaeiginleikar.
Ekki veit ég gerla hvernig ástandið
í þessum efnum er meðal íslenskra
barna. En á íslandi sem annars staðar
á skyndibitafæðan miklum vinsældum
að fagna, eins og margt annað sem
betra væri að forðast.
Einn frummælandi á ráðstefnu
næringarlækna í sumar taldi að offitu
bama mætti rekja til áðurnefndrar
þróunar. Hann segir, að 11 milljónir
bandarískra barna á aldrinum 6-17 ára
séu of feit og þeim börnum á aldrinum
6-11 ára, sem teljast vera feit, hafi
fjölgað um meira en helmmg (54%)
frá 1963 til 1980. Hann segir, að böm-
um, sem séu afmynduð vegna offitu,
hafi einnig fjölgað um helming á síðari
árum og þau feitustu bæti stöðugt við
sig.
Sérfræðingarnir telja að nútíma-
börn hreyfi sig ekki nóg og neyti of
hitaeiningaríkrar fæðu. Ef menn fá 50
hitaeiningum of mikið á hverjum degi
bæta þeir á sig hálfu þriðja kílói á ári
og menn þyngjast um 5 kg á ári, ef
þeir fá 100 hitaeiningum of mikið á
dag.
Sérfræðingarnir ráðleggja að 30%
fæðunnar skuli innihalda fitu, en þar af
verði þriðjungurinn að vera steinefna-
rík mettuð fita.
Hótel Flúðir
Funda og ráðstefnusalir.
Sérbyggð gistiaðstaða í tengslum
við Skjólborg, opið allt árið.
Hverju herbergi fylgir sér bað
og útisetlaug.
Verið velkomin.
Hótel Flúðir
Hrunamannahreppi
(20 mín. keyrsla frá Selfossi)
Sími: 98-66630
65