Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1989, Blaðsíða 66

Frjáls verslun - 01.08.1989, Blaðsíða 66
 BREF FRA UTGEFANDA SKREFí ÁTTINA Eigi alls fyrir löngu kynnti Jón Sigurðsson viðskipt- aráðherra tillögur sínar um miklar breytingar á regl- um um hlutafé og viðskipti með hlutabréf. Hér eru tvímælalaust á ferðinni afar athyglisverðar og löngu tímabærar tillögur sem gætu haft veruleg áhrif á ís- lenskt atvinnulíf þegar tímar líða — ef þær ná þá fram að ganga. Er vonandi að ráðherra leggi málið sem fyrst fyrir Alþingi og að það drukkni þar ekki í málalenging- um og þrasi um önnur mál eða sofni svefninum langa eins og títt virðist vera um mál sem ætla má að geti komið atvinnulífinu til góða. Sennilega hefur það sjaldan verið ljósara en einmitt nú að skortur á eigin fé er einn erfiðasti djöfullinn sem íslenskt atvinnulíf hefur að draga. Fyrirtæki hafa orð- ið að byggja fjárfestingar sínar og starfsemi að lang- mestu leyti á lánsfé. Slíkt var vitanlega hægt meðan vextir voru neikvæðir en sú gífurlega sveifla frá neik- væðum vöxtum í háa raunvexti sem orðið hefur á til- tölulega skömmum tíma hefur kippt fjárhagslegum stoðum undan fjölmörgum fyrirtækjum með þeim af- leiðingum sem nú sjást hvarvetna í íslensku þjóðfélagi og munu þær hafa enn frekari ófyrirséðar afleiðingar ef ekki verður að gert. Tillögur viðskiptaráðherra miða að því að almenn- ingur sjái sér hag í því að leggja fjármagn í atvinnulífið í formi hlutabréfakaupa. Það er rétt mat hjá honum að sú stefnubreyting mun ekki eiga sér stað nema með stýringu stjórnvalda. Þaðan þarf að koma verulegur hvati til þess að árangur náist á þessu sviði og vænleg- asti hvatinn eru skattaívilnanir. Þótt tillögur ráðherra séu góðar og gildar þurfa þær að ganga lengra til þess að von sé til þess að umtalsverður árangur náist. Fjór- ar meginforsendur verða að vera fyrir hendi til þess að almenningur leggi sparifé sitt eða hluta þess í atvinnu- lífið. f fyrsta lagi er nauðsynlegt að rýmka skattaregl- ur þannig að hlutabréfakaup í öllum hlutafélögum verði frádráttarbær, en verði ekki takmörkuð við stærstu félögin eins og nú er í skattalögunum. í öðru lagi þarf frádráttur vegna hlutabréfakaupa einstak- linga að verða miklu hærri en nú er. Þessi upphæð var 72 þúsund krónur á verðlagi ársins 1988, en þyrfti að vera 250 þúsund krónur á verðlagi ársins 1989. í þriðja lagi þarf að auka skattfrelsi arðs af hlutabréfum veru- lega. Sú upphæð var 90 þúsund krónur árið 1988 en á verðlagi ársins 1989 þyrfi upphæðin að vera um 330 þúsund krónur. í fjórða lagi er nauðsynlegt að fella niður eignaskatta af hlutabréfaeign, sem nemur allt að 3 milljónum króna. Ef slík ákvæði yrðu í nýju hlutafjárlögunum er ekki að efa að almenningur á íslandi myndi sjá sér veruleg- an hag í því að leggja sparifé sitt í atvinnulífið og að áhættan sem í því fælist fyrir sparifjáreigendur yrði í lágmarki. Kostir þess að opna atvinnulífið meira og auka möguleika almennings og starfsfólks íyrirtækja á að taka þátt í rekstrinum eru ótvíræðir. Vissulega leggur slíkt rekstrarform kvaðir á herðar stjórnendum fyrirtækja sem verða þá að reka fyrirtækin fyrir opnari tjöldum og undir meiri smásjá en oftast er. En aðal- atriðið er að fyrirtækin byggi upp eigið fé og efli þannig rekstur sinn. Ef það er í raun vilji stjórnvalda að gera þær breyt- ingar sem felast í hugmyndum viðskiptaráðherra þurfa þær einnig að skapa atvinnufyrirtækjunum möguleika á að skila hagnaði til þess að þau geti síðan greitt hluthöfunum arð af hlutabréfum þeirra. Hagnaður hef- ur til þessa verið hálfgert bannorð í íslenskum at- vinnurekstri og ef um hann hefur verið að ræða hefur hann nánast verið gerður upptækur í formi skatt- heimtu. Það hefur aftur leitt til þess að verðmætasköp- un í atvinnurekstrinum hefur verið í lágmarki. Það væri óskandi að það frumkvæði sem Jón Sig- urðsson viðskiptaráðherra sýnir nú og sá skilningur á þörfum atvinnulífsins sem fram kemur í tillögum hans, næðu fram að ganga. Vonandi verður einnig skilningur á því að skrefið þarf að vera enn stærra en ráðherra fyrirhugar til þess að raunverulegur árangur náist. 66
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.