Frjáls verslun - 01.07.1991, Page 22
FORSIÐUGREIN
Þeir hafa unnið hjá varnarliðinu í 40 ár eða frá upphafi: Frá vinstri: Kjartan Eiðsson, Magnús Jónsson, Amór
Jóhannesson, Jón Þorsteinsson, Magnús Ólafsson, Helgi Jakobsson, Kristján Júlíusson, Bjarni Jónsson og Einar
Jónsson.
staðgreiðsla til sveitarfélaga á Suður-
nesjum nemi á yfirstandandi ári um 55
milljónum króna af 776 starfsmönn-
um. Þar af er staðgreiðsla til Kefla-
víkur og Njarðvíkur um 45 milljónir
króna. Er þá aðeins átt við útsvar af
þeim sem starfa hjá varnarliðinu. Séu
tekjur annarra sem tengjast verkum
vamarliðsins beint, reiknaðar með
má áætla að beinar útsvarstekjur
þessara tveggja bæjarfélaga séu um
80 milljónir króna af þeim sem starfa
hjá varnarliðinu.
1800-2000 FJÖLSKYLDURA
SUÐURNESJUM í VERKEFNUM FYRIR
VARNARLIÐIÐ
Áhrifa af starfsemi á Keflavíkur-
velli gætir um alla geira ísiensks hag-
kerfis. Langáþreifanlegust eru þó
áhrifin á Suðurnesjum, þar sem tugir
undirverktaka og þjónustufyrirtækja
hafa haft verulegar tekjur af beinni
eða óbeinni sölu á varningi eða þjón-
ustu til varnarliðsins — og drjúgur
hluti sveitarfélagstekna á rætur að
rekja til hins sama. í Njarðvíkum,
Sandgerði, Höfnum og í Garðinum
eru aðstöðugjöld þeirra verktaka,
sem starfa innan sveitarfélagsmarka,
stór hluti heildartekna sveitarfélag-
anna. Bara íslenskir aðalverktakar
greiddu árið 1989 aðstöðugjöld til
þessara fjögurra sveitarfélaga sem
hér segir:
Njarðvík: 14.320.880 kr.
Sandgerði: 9.922.780 kr.
Hafnarhr.: 6.896.650 kr.
Gerðahr.: 2.684.400 kr.
Þess má geta að skattgreiðendur í
Hafnarhreppi eru aðeins 94. 67% af
sölutekjum Hitaveitu Suðurnesja af
heitu vatni koma frá varnarliðinu og
sömuleiðis 52% heildartekna af raf-
magni. Varnarliðið tók þátt í ýmsum
sameiginlegum verkefnum með
sveitarstjómum á Suðurnesjum, m.a.
varðandi heilbrigðis- og hollustumál
og sorphreinsun.
Miðað við þau 776 störf hjá vamar-
liðinu, sem mönnuð eru af Suður-
nesjafólki, má reikna með að um 2500
TAFLA2:
TEKJUR TVÖFALT HÆRRI1990 EN1980
Gjaldeyristekjur af varnarliðinu voru tvöfalt hærri í fyrra en þær
voru fyrir áratug miðað við fast gengi á dollar. Á þessu tímabili
hefur dollari stigið 12 falt í verði en tekjur af varnarliðinu 25
faldast í íslenskum krónum.
Varnarliðstekjur Gengi dollars
m.kr.
1980 332 (100) 4,79 (100)
1990 8.252 (2.485) 58,23 (1.216)
22