Frjáls verslun - 01.07.1991, Blaðsíða 40
verða því að horfa á eftir megninu af gróð-
anum renna í vasa Morgan Creek fyrir-
tækisins sem greiddi afganginn af fram-
leiðslukostnaðinum.
Illa horfir einnig með nýja reglugerð
sem gerir það að verkum að þær sjón-
varpsstöðvar, sem verða fyrstar til að
sýna sjónvarpsþættiíBandaríkjunum, eigi
eftir það rétt á hluta af tekjum af sölu
þáttanna erlendis. Það þýðir um leið minni
tekjur til framleiðanda þáttanna. Reglu-
gerðardraugurinn ógnar kapalsjónvarpinu
einnig en þar er falinn mesti styrkur Time
Warner samsteypunnar. Líklegt er talið
að Bandaríkjaþing samþykki fljótlega lög
sem kreflast þess að kapalsjónvarps-
stöðvamar greiði gjöld af því efni sem
núna er sýnt ókeypis. Forráðamenn fyrir-
tækisins telja slfk lög algera fásinnu en fá
litlu þar umráðið.
STERKT FYRIRTÆKIOG VEL REKIÐ
Minnsta deildin innan Time Warner
samsteypunnar er svokölluð Home Box
Office (heimabíóið) eða HBO deildin en
hún dreifir efni gegnum kapalkerfin gegn
gjaldi öfugt við venjulegar kapalstöðvar,
sem fá tekjur sínar mestmegnis af auglýs-
ingum. Þótt HBO sé öflugastur og bestur
slíkra dreifiaðila þá er heldur tekið að
dragast saman miðað við það þegar vest
lét. Þrátt fyrir ýmsar blikur þá er Time
Wamer gríðarlega sterkt og vel rekið
fyrirtæki. Vandinn felst einkum í því að
Ross lagði fjármagn hluthafa undir til að
kosta draumsýn sína um stórgróða á al-
þjóðamarkaði. Draumurinn virðist hins
vegar ekki ætla að rætast og hluthafar
verða að borga brúsann. Ross er ekki vin-
sælasti maður vestan hafs um þessar
mundir. Einu og hálfu ári eftir að hafa
komið í veg fyrir að fjárfestingaraðilar
gætu notið gylliboðs Paramount í hluta-
bréf Time er hann eina ferðina enn að láta
hluthafa þjást.
Það fer að teljast til þversagna að segj-
ast græða peninga á hlutabréfum í Time
Warner, að sögn Dale Hanson, forstjóra
Ijárfestingarfélags, sem á hlutabréf upp á
rúmlega 3 milljarða króna í samsteypunni.
Hanson er einn af mörgum hluthöfum sem
hafa bmgðist ókvæða við og lagt hart að
Time Wamer að hætta við hlutafjárútboð-
ið. Sögusagnir þess efnis að fyrirtækið
væri að láta undan þrýstingi hafa orðið til
þess að hlutabréf fyrirtækisins hafa hækk-
að í verði nokkmm sinnum í júlí.
HVERNIG FER?
Flestir telja að hlutafjárútboðið verði að
veruleika á einn eða annan hátt. Ef ekki á
að selja eignir fyrirtækisins þá er engin
önnur leið möguleg til að greiða niður 270
milljarða skuldina 1993. Skuldbreyting
myndi hafa í för með sér stórfelldan kostn-
aðarauka þar sem nýjar reglugerðir hafa
verið gefnar út sem heimila bönkum að
heimta miklu hærri þjónustugjöld þegar
um yfirtöku fyrirtækja sé að ræða. Ross
er því í vanda staddur. En hann er vanur
að sleppa óskaddaður út úr ótrúlegustu
ógöngum. Sem dæmi má nefna gríðar-
stórt gjaldþrot Atari dótturfyrirtækisins
og óvænt tilboð Paramount í Time.
Fáir búast þess vegna við öðru en að
Ross hafi það einnig af að þessu sinni. Það
er hins vegar vafasamt hvort draumsýnir
Ross lifi af þrengingamar. Time Wamer
er ekki í neinni yfirvofandi hættu en hlut-
hafa í stærsta Ijölmiðlafyrirtæki veraldar
er marga farið að gmna að verið sé að
verja fjármunum þeirra í tálsýnir og skýja-
borgir.
(Þýtt, stytt og endursagt. Heimild:
Business Week)
/a\
Smíðum flekahurðir úr
lituðu klæðningarstáli
eða trefjaplasti fyrir
Verksmiðjur
Verkstæði
Vörugeymslur
Bifreiðageymslur o.fl.
með eða án glugga
Öryggi — þægindi
ótrúleg ending og
ekki spillir útlitið.
íslensk framleiðsla
sem stenst samkeppni.
Stíll að utan sem innan.
ALLAR FREKARI UPPLÝSINGAR FÁST
BIFREIÐA- & TRÉSMIÐJA BORGARNES
BORGARNESI - SllUII 93-71975
40