Frjáls verslun - 01.07.1991, Blaðsíða 26
VARNARLIÐIÐ
ISLENSKIR STARFSMENN - STARFSGREINAR
SAMTALS ALLIR STARFSMENN: 1034
SAMFELAG SEM
KEMUR OG FER
ALM VERKAFOLK 244
23.6%
Guðni Jónsson starfsmannastjóri: „Ef þú þurftir að fá sæmilega skrifstofu-
mann þurftirðu að fá hann innan úr Reykjavík."
Aðeins í einni bandarískri
herstöð utan Bandaríkjanna er
erlendur starfsmannastjóri. Það
er á Islandi. Guðni Jónsson er
forstöðumaður starfsmanna-
halds varnarliðsins hér og jafn-
framt vinnumálaráðgjafi yfir-
manns varnarliðsins. I mars sl.
unnu 1034 íslendingar hjá varn-
arliðinu og að jafnaði eru á
þriðja hundrað Bandaríkjamenn
í borgaralegum störfum hjá
varnarliðinu. Einnig geta her-
menn lotið stjórn starfsmanna-
haldsins.
Starfsmannahald varnarliðsins hef-
ur umsjón með íslenskum og banda-
rískum borgurum sem starfa hjá
varnarliðinu og fá greitt úr fjárveiting-
arkerfi Bandaríkjanna, en auk þess er
umsjón með íslendingum er starfa
fyrir sjálfsaflastofnanir eins og versl-
anir á staðnum. Veitt er þjónusta og
höfð umsjón með 27 stofnunum
bandaríska ríkisins á íslandi.
SKRIFST OG VST 215
20.8%
IÐNADARMENN 176
17.0%
VERKFR/TÆKNIM 40
3.9%
VERKSTJORAR 95
9.2%
SLÖKKVIL/FLÞJ 148
14.3%
STJORNUNARST 116
11.2%
-
Starf hjá varnarliðinu er um margt
sérstakt. Á annað þúsund manns
ganga til verka á bandarísku yfirráða-
svæði og mynda tímabundið samfélag
um vinnu. Mörgum er vinnustaðurinn
ákaflega kær því að margir hafa unnið
í áratugi hjá „fyrirtækinu“. 11 karlar
hafa starfað frá upphafi, allt frá 1951
og óvenjumargir eru komnir á átt-
ræðisaldur.
íslenska ríkið leggur ekki til neitt
stofnfé. Dag hvern gengur fólk þetta
til ákveðinna verka sem Islendingar
kosta engu til — en njóta alls af. Laun
eru langt yfir meðaltali í landinu. Á
hverju ári njóta um 200 manns endur-
menntunar í einhverju formi, nám-
skeiða erlendis eða innanlands og
Ijóst er að mikil reynsla flyst yfir í
okkar samfélag. Mörg starfanna er
hvergi að finna í íslenskum atvinnu-
vegaskýrslum og þar sem tækni öll er
á hæsta stigi kynnast starfsmenn því
fremsta á ýmsum sviðum. Hjálpar-
sveitir eru í viðbragðsstöðu allan árs-
ins hring og haldið er uppi fullkomnum
millilandaflugvelli.
íslenskir varnarliðsstarfsmenn
mega ekki nýta sér þá sérþjónustu
sem er að finna vellinum, t.d. með því
að kaupa tollfrjálsar vörur sem falar
eru í verslunum. Matur í vinnu er þó
aðeins brot af því sem hann kostar
yfirleitt á íslandi. Það má helst líkja
kjörum íslendinga hjá varnarliðinu við
lífs viðurværi farand verkamanna,
sem koma og fara án þess að tilheyra
beint því samfélagi sem þeir afla lifi-
brauðs í. Laun fylgja töxtum sem sér-
26